fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Snjallsímar OPPO komnir á íslenskan markað

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 09:06

Brynjar Örn Sigurðsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snjallsímar frá farsímaframleiðandanum OPPO eru komnir í sölu á íslenskum markaði. OPPO er fjórði stærsti farsímaframleiðandi heims í dag og hafa vinsældir vörumerkisins aukist hratt á undanförnum árum, eins og kemur fram í tilkynningu.

Símarnir frá OPPO eru meðal þeirra vinsælustu í Asíu og hefur vörumerkið verið í mikilli sókn á Evrópumörkuðum upp á síðkastið, þar á meðal í Bretlandi, Þýskalandi og á Norðurlöndum.

Snjallsímarnir frá OPPO voru kynntir á UTmessunni í Hörpunni sem fram fór um helgina í sýningarbási Ofar.

Stendur jafnfætis risunum á snjallsímamarkaðnum

OPPO er þekkt fyrir að framleiða snjallsíma sem standa jafnfætis risunum á markaðnum þegar kemur að tækni og hönnun, en á verði sem kemur mörgum á óvart. Símarnir þykja skara sérstaklega fram úr í öflugum rafhlöðum, hágæða myndavélakerfum og nútímalegri hönnun.

Flaggskip OPPO, Find X9 Pro er með eina endingarbestu rafhlöðu sem finnst á markaðnum í dag, en síminn getur virkað í tvo sólarhringa án hleðslu, ef miðað er við meðalnotkun. Síminn hefur einnig vakið sérstaka athygli fyrir frábært 200 MP myndavélakerfi sem skilar sér í skýrum og nákvæmum myndum, bæði fyrir byrjendur og lengra komna.

Tölvu- og tæknifyrirtækið Ofar er þjónustu- og dreifingaraðili fyrir OPPO á Íslandi og sér um öll verkstæðis og ábyrgðarmál á tækjunum. Símar OPPO eru í dag seldir í verslunum Elko og Ofar.

„Það verður spennandi að kynna OPPO fyrir íslenskum markaði og við teljum að vörumerkið muni falla vel að kröfum neytenda um nýjustu tækni á samkeppnishæfu verði“, segir Brynjar Örn Sigurðsson, vörustjóri hjá Ofar.

Um OPPO
OPPO er kínverskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu snjallsíma og annarra rafeindatækja. Fyrirtækið var stofnað árið 2004 og starfar á fjölmörgum mörkuðum um allan heim, þar á meðal í Asíu og Evrópu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður