fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Í gæsluvarðhaldi til 13. febrúar vegna hnífstungu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 9. febrúar 2026 16:32

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá því að karlmaður á þrítugsaldri hafi verið úrskurðaður í gæsluvaðhalds til föstudags vegna hnífstungu á í miðborginni á laugardagskvöld.

Fréttatilkynningin er eftirfarandi:

„Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 13. febrúar að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á líkamsárás í miðborginni sl. laugardagskvöld. Maðurinn sem er í haldi er grunaður um að hafa stungið annan mann með hnífi. Brotaþoli var færður á slysadeild, en hefur nú verið útskrifaður.“

Samkvæmt heimildum Vísis er hér um að ræða Gabriel Douane Boama, landsþekktan síbrotamann. DV greindi frá því í gærkvöld að hann hefði verið handtekinn, ásamt tveimur öðrum, vegna málsins, aðeins nokkrum dögum eftir að hann var látinn laus að lokinni langri afplánun:

Sjá einnig: Gabríel Douane grunaður um að stinga mann í miðborginni nokkrum dögum eftir að hann var látinn laus

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“