fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Kveðja piltinn sem lést í umferðarslysi á Miklubraut – „Við vottum fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 7. febrúar 2026 15:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íshokkídeild Skautafélags Reykjavíkur birti samúðarkveðju á Facebook-síðu sinni til fjölskyldu piltsins sem lést í umferðarslysi á Miklubraut á fimmtudagskvöld.

Hinn látni, Patrekur Freyr Sveinsson, var liðsmaður í unglingaliði félagsins. Í færslunni segir að hann hafi verið hvers manns hugljúfi, frábær vinur og góður liðsfélagi. Færslan er eftirfarandi:

„Á fimmtudagskvöld, 5. febrúar s.l. varð hræðilegt bílslys á Miklubraut í Reykjavík. Í slysinu lést ungur maður, Patrekur Freyr Sveinsson aðeins 17 ára gamall en hann var liðsmaður í U18 liði SR.

Íshokkísamfélagið á Íslandi er ekki fjölmennt en það er þétt og á stundum sem þessum stöndum við saman öll sem eitt. Þrátt fyrir að við séum harmi slegin og hjörtu okkar allra brostin vegna fráfalls Patreks þá erum við ákveðin í því að halda minningu hans á lofti.

Patrekur eða Patti, eins og hann var jafnan kallaður, var hvers manns hugljúfi; frábær vinur og góður liðsfélagi. Hann hafði mikinn metnað fyrir íshokkííþróttinni og stefndi heilshugar að því að verða valinn í landslið Íslands. Með sínum einstaka karakter og ljúfmennsku snerti hann hjörtu okkar allra. Hans er og verður sárt saknað en minning hans mun lifa í hjörtum SR-fjölskyldunnar um ókomna tíð. Hann var einn af okkur.

Hugur okkar allra er hjá fjölskyldu Patta, Ásgerði, Svenna, Kristófer Mána og Ronju Líf, á þessum erfiðu tímum.

Við vottum fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð.

Íshokkífjölskyldan ykkar stendur þétt við bakið á ykkur.“

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Í gær

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Í gær

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Í gær

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon