fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Stýrivextir verða óbreyttir

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 08:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 7,25%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Þetta kemur fram á vef Seðlabankans.

„Verðbólga mælist nú 5,2% og hefur aukist á ný. Þótt hækkun verðlags í janúar megi að miklu leyti rekja til breyttrar gjaldtöku hins opinbera af nýjum bifreiðum eru verðhækkanir á tiltölulega breiðum grunni. Undirliggjandi verðbólguþrýstingur er því áfram þrálátur þótt hægt hafi á efnahagsumsvifum og skýr merki séu um kólnun á vinnumarkaði,“ segir í frétt á vef Seðlabankans þar sem ákvörðunin er tilkynnt.

Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er spennan í þjóðarbúinu horfin, útlit fyrir tiltölulega hægan hagvöxt og að verðbólga hjaðni þegar líður á árið.

„Þrátt fyrir tímabundna aukningu verðbólgu í byrjun árs hafa verðbólguhorfur til lengri tíma lítið breyst. Óvissa er þó mikil enda launahækkanir enn töluverðar og verðbólguvæntingar mælast áfram yfir markmiði,“ segir í tilkynningunni.

Af þessum sökum telur peningastefnunefnd rétt að halda vöxtum bankans óbreyttum. Frekari ákvarðanir um lækkun vaxta bankans eru háðar því að skýrar vísbendingar komi fram um að verðbólga sé að hjaðna í 2½% markmið bankans.

„Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður