fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Sérfræðingur í öldrunarrannsóknum segir að það að fylgja 12-tíma reglunni geti lengt lífið

Pressan
Laugardaginn 7. febrúar 2026 20:30

Þessi náði háum aldri en ekki er vitað hvort hann fylgdi 12-tíma reglunni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valter Longo hefur stundað rannsóknir á öldrun og lífsstíl áratugum saman en hann er forstjóri Longevity Institue við University of Southern California. Hann segir að það að fylgja 12-tíma reglunni geti verið mikilvægt hvað varðar að lifa lengur. Daily Record skýrir frá þessu.

Í þessari 12-tíma reglu felst að máltíðir dagsins eru borðaðar á föstu 12-tíma tímabili, sem er það sama hvern dag. Longo segir að það sé hægt að lengja lífið og halda góðri heilsu lengur með því að borða næringarríkan mat á þessum 12 tímum.  Hann mælir með mat, sem inniheldur mikið af vítamínum og steinefnum, lítilli neyslu á mettaðri fitu og aukinni neyslu á ólífuolíu. En tímasetning máltíðanna er gríðarlega mikilvæg að hans sögn.

Hann ráðleggur fólki að borða fyrstu máltíð dagsins eftir klukkan 8 og þá síðustu ekki síðar en klukkan 20. „Ekki borða neitt síðustu þrjár til fjórar klukkustundirnar fyrir háttatíma,“ sagði hann.

Hann ráðleggur fólki einnig að taka fjölvítamín þriðja hvern dag.

Skoðanir hans falla vel að ýmsum rannsóknum sem hafa leitt í ljós heilsufarslegan ávinning af að borða snemma á daginn.

Í rannsókn vísindamanna við Harvard háskólann frá 2014 lögðust þeir yfir og greindu matarvenjur tæplega 27.000 karlmanna á 16 ára tímabili. Þátttakendurnir skráðu hvenær þeir borðuðu morgunmat, hádegismat, kvöldmat og á milli mála.

Vísindamennirnir beindu sjónum sínum sérstaklega að tengslum matarvenja og hættunnar á að fá hjarta- og æðasjúkdóma.

Niðurstöðurnar sýndu að karlar, sem borðuðu seint á kvöldin, voru 55% líklegri til að fá hjarta- og æðasjúkdóma en þeir sem létu hjá líða að borða seint á daginn og kvöldin.

Einnig kom í ljós að þeir sem slepptu því að borða morgunmat voru í 27% meiri hættu á að fá hjarta- og æðasjúkdóma en þeir sem borðuðu morgunmat reglulega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“