fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Íslenskur leigubílstjóri furðulostinn yfir því að vera í Epstein-skjölunum: „Ég man ekkert eftir því“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 2. febrúar 2026 11:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nafn íslensks leigubílstjóra, Kristjáns Jón Karlssonar, má finna í nýjasta skammti af Epstein-skjölunum sem gerð voru opinber í síðustu viku. Um var að ræða um 3 milljónir blaðsíðna af ýmsum gögnum, til dæmis ljósmyndum, myndskeiðum, tölvupóstum, skýrslum og minnisblöðum yfirvalda sem og bókhaldsgögnum. Mannlíf greinir frá.

Nafn Kristjáns Jóns má finna á kvittun frá ferð Ghislaine Maxwell, samverkakonu Epstein til margra ára, en hún kom til Íslands árið 2013 til þess að vera viðstödd ráðstefnu Hringborð Norðurslóða (e. Artic Circle), sem Ólafur Ragnar Grímsson, hafði veg og vanda að og var sótt af fjölmörgum fyrirmennum.

Maxwell, sem nú afplánar 20 ára fangelsisdóm fyrir afbrot sín með Epstein, greiddi um 16 þúsund krónur fyrir farið með Kristjáni Jóni samkvæmt bókhaldsgögnunum. Í samtali við Mannlíf kemur Kristján Jón af fjöllum varðandi þennan umdeild farþega.  „Á ég að hafa keyrt hana? Ég man ekkert eftir því,“ svaraði Kristján. „Ég get ekki ímyndað mér hvernig mitt nafn hefur komist þarna inn,“ bætti hann við skellti upp úr.

Mynd/DómsmálaráðuneytiTalsvert hefur verið fjallað um Íslendinga sem minnst hefur verið á í skjölunum. Þannig hefur verið fjallað um að Epstein fékk tölvupósta um Kára Stefánsson og Íslenska erfðagreiningu sem og ábendingu um að fá kaupa listaverk eftir Ólaf Elíasson.

Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri Heimildarinnar og ritstjóri Mannlífs, skrifaði í vikunni pistil þar sem hann gagnrýndi til að mynda Morgunblaðið fyrir að slá upp fréttum um áðurnefnda Íslendinga sem við fyrstu sýn gefa til kynna að þeir hafi eitthvað misjafnt í pokahorninu. Það sé hins vegar augljóslega ekki raunin, rétt eins og í tilviki leigubílstjórans  Kristjáns Jóns Karlssonar.

Að mati Jóns Trausta sé mikilvægt að það komi skýrt fram af hvað tilefni minnst er á fólk í Epstein-skjölunum. Benti hann til að mynda á að frétt um að minnst sé á Dorrit Moussaieff í skjölunum, sem og ónefndan eiginmann hennar Ólaf Ragnar Grímsson, eigi meiri rétt á sér. Samhengið gefi til kynna að Dorrit hafi þekkt Epstein meira en hingað til hefur verið gefið upp.

Grein Mannlífs í heild sinni.

Hér má lesa færslu Jóns Trausta:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump