fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Heimir Már um málþóf stjórnarandstöðunnar – „Það er greinilega erfitt að jafna sig á því að hafa verið hafnað af þjóðinni í síðustu kosningum“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 5. júní 2025 20:00

Heimir Már skýtur fast á stjórnarandstöðuna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi þingflokks Flokks fólksins, gagnrýnir málþóf stjórnarandstöðunnar harðlega. Hann segir að mál sem flestir séu sammála um séu rædd klukkustundum saman.

„Það verður ekki logið upp á þessa stjórnarandstöðu. Hún lætur ekki nægja að vera með málþóf í 1. umræðu um mál og hindra að þau komist til nefnda, heldur einnig í 3. umræðu sem yfirleitt stendur yfir í örfáar mínútur og síðan fer mál í loka atkvæðagreiðslu,“ segir Heimir Már og beinir spjótum sínum að stjórnarandstöðuflokkunum þremur. Það er Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Miðflokki sem sett hafa met í málþófi á yfirstandandi þingi.

„Hinn 22. maí ræddi stjórnarandstaðan frumvarp um grunnskóla (námsmat) í tæpar fjórar klukkustundir í 3. umræðu sem tókst ekki að ljúka, sem er mjög óvenjulegt,“ segir Heimir Már. „Þess var freistað klukkan 13 í dag að klára þessa 3. umræðu. Nei, það er ekki í boði hjá stjórnarandstöðunni sem er enn að ausa úr djúpum og víðum viskubrunni sínum um málið þegar klukkan er 15:12. Alein í bergmálshelli sínum.“

Sjá einnig:

Stjórnarandstaðan pirruð yfir að fá að halda málþófinu áfram fram á nótt – „Hvaða leikrit er í gangi?“

Það eigi sem sagt að koma í veg fyrir að frumvarp sem njóti mikils meirihluta stuðnings á Alþingi verði að lögum.

Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn tapsárir

„Það er greinilega erfitt að jafna sig á því að hafa verið hafnað af þjóðinni í síðustu kosningum, þar sem bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn fengu allra verstu útreið í sögu þessara flokka,“ segir Heimir Már. En í kosningunum fékk Sjálfstæðisflokkurinn 19,36 prósent og Framsókn aðeins 7,8 prósent og þurrkaðist út á höfuðborgarsvæðinu.

„Nú keppast þessir tveir gömlu stjórnarflokkar við að toppa Miðflokkinn í innihaldslausu blaðri og telja greinilega að það muni höfða til fólksins í landinu. Nýjustu kannanir sýna annað, fylgið heldur áfram að hrynja af þeim,“ segir hann og vísar til skoðanakannana sem sýnt hafa dvínandi fylgi við stjórnarandstöðuflokkana. Meðal annars hafi Framsóknarflokkurinn mælst tæpur inni á Alþingi í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup.

Poppar og fylgist með mokstrinum

Undir þessa færslu tekur meðal annars Ásta Lóa Þórsdóttir, þingmaður og oddviti flokksins í Suðurkjördæmi.

„og nú er klukkan 16:28 og ennþá eru fimm á mælendaskrá. Þegar fólk er fast í skurðinum, er skynsamlegt að hætta að moka, en skynsemi þvælist víst ekki fyrir öllum svo nú er bara að poppa og fylgjast með „mokstrinum“,“ segir hún.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvað hafa margir sótt um vernd á Íslandi árið 2025 og hvaðan koma þeir?

Hvað hafa margir sótt um vernd á Íslandi árið 2025 og hvaðan koma þeir?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“