fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
433Sport

Rogers sagður efstur á óskalista Arteta

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 2. júní 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal hefur sett stefnuna á Morgan Rogers, kantmann Aston Villa og enska landsliðsins, samkvæmt fréttum Mirror.

Mikel Arteta er sagður líta á hinn 23 ára gamla Rogers sem eitt helsta skotmark sitt á félagaskiptamarkaðnum eftir að Arsenal tryggði sér enska meistaratitilinn á síðasta tímabili. Markmið Spánverjans er að styrkja hópinn enn frekar fyrir titilvörnina og auka möguleika félagsins í Meistaradeild Evrópu.

Rogers átti frábært tímabil með Aston Villa og var einn af lykilmönnum liðsins bæði í deild og Evrópukeppni. Frammistaða hans hefur vakið athygli stærstu félaga Evrópu og Arsenal er ekki eina félagið sem hefur áhuga.

Nýkrýndir Evrópumeistarar Paris Saint-Germain fylgjast einnig grannt með stöðu leikmannsins og gætu reynst Arsenal erfiðir keppinautar í baráttunni um undirskrift hans.

Aston Villa hefur hins vegar engan áhuga á að missa einn af sínum bestu leikmönnum og er talið að félagið muni krefjast mjög hárra fjárhæða fyrir Rogers.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Beckham girnist Guardiola

Beckham girnist Guardiola
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Kemur frítt frá City og gerir tveggja ára samning við Barcelona

Kemur frítt frá City og gerir tveggja ára samning við Barcelona
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Staðfestir að hann sé í krabbameinsmeðferð – Ætlaði að gera það frá sviðsljósinu en kann illa á tæknina

Staðfestir að hann sé í krabbameinsmeðferð – Ætlaði að gera það frá sviðsljósinu en kann illa á tæknina
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Myndband af þekktum ökumanni undir áhrifum fíkniefna vekur mikla athygli netverja

Myndband af þekktum ökumanni undir áhrifum fíkniefna vekur mikla athygli netverja
433Sport
Í gær

Liverpool reynir að semja við leikmanninn áður en þeir láta til skara skríða

Liverpool reynir að semja við leikmanninn áður en þeir láta til skara skríða
433Sport
Í gær

Keyptu köttinn í sekknum um helgina – Þetta kom í ljós þegar límmiði var fjarlægður

Keyptu köttinn í sekknum um helgina – Þetta kom í ljós þegar límmiði var fjarlægður