fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Björn Bragi sagður káfa á stúlku undir lögaldri – Vafasamt myndband í dreifingu

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 30. október 2018 08:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband þar sem skemmtikrafturinn og uppistandarinn Björn Bragi Arnarsson virðist vera að þukla á stúlku undir lögaldri er komið í dreifingu á samskiptamiðlum. Átti atvikið sér stað eftir skemmtun hjá KPMG á Akureyri, en Björn var veislustjóri þar. Hefur DV fengið ábendingar um að myndskeiðið sé tekið inni á Subway á Akureyri þar sem stúlkan var að bíða eftir afgeiðslu.

DV hefur aldrei áður fengið jafnmargar ábendingar um eitt og sama fréttaefnið. Eru samskiptamiðlar að fara á hliðina vegna myndbandsins. DV reyndi ítrekað að hafa samband við Björn Braga við vinnslu fréttarinnar en án árangurs. Svaraði hann hvorki síma né textaskilaboðum.

Stúlkan á myndbandinu er fædd árið 2001 og er 17 ára. Hún hefur tjáð sig stuttlega um málið á samskiptamiðlum. Ekki skal fullyrt að myndbandið sanni káf eða óviðeigandi hegðun Björns Braga. Þó bent hafi verið á að liturinn á jakkaerminni passi svo við jakkann þegar stúlkan snýr vélinni við, þá er ekki hægt að fullyrða að það sé Björn Bragi sem brjóti á stúlkunni né það sé stúlkan sem sést framan í á myndbandinu sem sé beitt kynferðislegri áreitni. Stúlkan á myndskeiðinu segir í lokaðri grúppu á Facebook að hún hafi tekið myndbandið upp. Hún sé fædd árið 2001 og myndbandið sé bókstaflega búið að fara út um allt. DV getur eins og áður segir staðfest það og líklegt að stór hluti þjóðarinnar hafi barið það augum nú þegar. Hefur stúlkunni verið sérstaklega hrósað fyrir að hafa tekið það upp, en Björn Bragi fær skammir. Eins og áður segir hefur Björn Bragi ekki svarað síma, smáskilaboðum eða skilaboðum á Facebook sem sáust á reikningi hans að hluta.

Björn Bragi er einn vinsælasti uppistandari og skemmtikraftur landsins. Hefur hann meðal annars gert garðinn frægan með grínhópnum Mið-Ísland. Eins og áður segir loga samfélagsmiðlar vegna myndbandsins og miklar umræður sem hafa átt sér stað á Twitter.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna