fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

„Borgarbúar munu verða varir við aukinn óþrifnað“

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar ákvað að hætta þvotti á húsagötum – Spara 3,5 milljónir króna

Björn Þorfinnsson
Sunnudaginn 27. mars 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þvotti á húsagötum Reykjavíkurborgar verður hætt á þessu ári samkvæmt ákvörðun Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Um er að ræða breytingar á svokallaðri vorhreinsun borgarinnar sem fram fer í öllum hverfum í kjölfar þess að snjóa leysir og göturnar koma skítugar undan snjó. Aðgerðin sparar Reykjavíkurborg um 3,5 milljónir króna en reyndur verktaki telur að borgarbúar verði mjög varir við aukinn óþrifnað í borginni og að loftgæði gætu versnað.

Aðeins ein yfirferð

„Þetta hefur verið með þeim hætti að göturnar eru fyrst forsópaðar. Síðan er farin seinni umferð þar sem send eru dreifibréf í hús og íbúar beðnir um að færa bíla sína af almennum svæðum gatnanna. Að lokum voru göturnar sópaðar aftur og þvegnar,“ segir Björn Ingvarsson, deildarstjóri Þjónustumiðstöðvar borgarlandsins. Breytingin mun fela í sér að göturnar verða aðeins sópaðar vel og vandlega einu sinni en ekki þvegnar. Aðspurður um sparnaðinn af því að götuþvotturinn verði aflagður segir Björn: „Það er áætlað að um 3,5 milljónir sparist.“

Aukinn óþrifnaður

DV hafði samband við Lárus Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóra Hreinsitækni, sem séð hefur um þrifin til þess að fá frekari útskýringar á því hverjar afleiðingarnar yrðu. „Að mínu mati er verið að spara aurinn en kasta krónunni og mér finnst einkennilegt að Reykjavíkurborg hafi ekki kynnt þessa ákvörðun betur. Vatnsþvotturinn gerir að verkum að göturnar verða tandurhreinar, hann tekur ryk og sand úr götukantinum, sem sópurinn hefur ekki náð til. Síðan er drullunni sópað upp. Ég held að borgarbúar og ferðamenn sem hingað koma muni verða mjög varir við aukinn óþrifnað,“ segir Lárus. Að hans mati verða hverfi eins og gamli Vesturbærinn, Þingholtin og Norðurmýrin verst úti enda margar göturnar þröngar og mikið um kyrrstæða bíla.

„Þyrlast upp svifryk og sandur“

Það eru ekki aðeins göturnar sem verða ekki þrifnar heldur nær ákvörðunin einnig til göngustíga og trappa. „Við höfum þvegið gangstéttir, sem eru 60 sentimetrar að breidd, sem sóparnir hafa ekki komist upp á. Við smúlum þær með vatni þannig að skíturinn lekur niður á göturnar og þar er þessu sópað upp. Ég get ekki betur skilið en að þessum þvotti verði einnig hætt,“ segir Lárus. Að hans mati mun ákvörðunin að öllum líkindum hafa áhrif á loftgæði í borginni. „Maður getur ímyndað sér það, að þegar hvessir þá þyrlast upp svifryk og sandur.“

Sveigjanlegra hjá smærri sveitarfélögunum

Þrif á götum Reykjavíkurborgar hefur verið í föstum skorðum undanfarin ár að vori og hausti. Höfuðborgin hefur verið eina sveitarfélagið sem stundar reglulegan götuþvott en í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu hefur götuþvottur verið eftir atvikum og þörfum. „Það gerist ekkert yfir annað yfir sumarið hjá borginni. Önnur sveitarfélög eru hins vegar að þrífa götur eins og þörf er á, yfir allt sumarið. Við fáum reglulega lista frá þeim með kannski tíu götum sem þurfa yfirhalningu. Þrifin eru því með mun sveigjanlegra fyrirkomulagi hjá smærri sveitarfélögunum,“ segir Lárus.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
Fréttir
Í gær

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv