
Í umfjöllun CHIP kemur fram að næringarfræðingar bendi sérstaklega á sjö fæðutegundir sem fólk ætti að borða daglega.
Þessi matvæli eru:
Epli – Þau eru klassísk vítamínsprengja. Þau eru líka full af trefjum eins og aðrir ávextir en eplin eru meðal þeirra ávaxta sem innihalda einna mest af þessari hollustu. Að borða ávexti hjálpar til við að uppfylla daglega þörf okkar fyrir C-vítamín og styrkir ónæmiskerfið.
Repjuolía – Hún inniheldur bæði omega-3 og einómettaðar fitusýrur. Matskeið á dag styrkir hjartað og frumur líkamans.
Grænt grænmeti – Það er fullt af andoxunarefnum. Grænkál, spínat og spergilkál eru stútfull af vítamínum og steinefnum. Þau vinna gegn bólgum og geta minnkað líkurnar á krónískum sjúkdómum. Þrír skammtar á dag er fullkomið.
Hörfræ – Þau eru góð fyrir magann og blóðþrýstinginn. Þau innihalda mikið af trefjum og omega-3. Þau hjálpa meltingunni og geta jafnvel lækkað blóðþrýstinginn. Notaðu möluð fræ og og mundu að drekka nægilega mikið.
Súrkál – Það er náttúruleg uppspretta mjólkursýrugerla. Gerjað grænmæti á borð við súrkál styrkir þarmaflóruna með góðum bakteríum. Veljið óunnið eða heimagert súrkál til að fá sem mest út úr því.
Haframjöl – Það er hinn fullkomni morgunmatur því það inniheldur flókin kolvetni, prótín og járn.
Grófkorna matvörur – Matvörur úr grófu korni metta lengur og betur en aðrar matvörur. Gróft korn inniheldur mikið af B-vítamíni og trefjum sem tryggja langvarandi mettunartilfinningu. Mælt er með að fólk borði nokkra skammta af grófu korni á dag.