fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Kona á miðjum aldri pantaði „sjálfsvígspakka“ í pósti – Sendi synina með pabba sínum í burtu

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 22. maí 2026 21:30

Sean fann Jane látna í kjallaranum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglurannsókn í Bretlandi sýnir að tveggja barna móðir á miðjum aldri lést eftir að hafa pantað sér „sjálfsvígspakka“ í póstinum. Konan hafði barist við andlega erfiðleika.

Breska dagblaðið The Daily Star greinir frá þessu.

Konan, hin 44 ára Jane Colechin, lést um áramótin árið 2024 eftir að hafa tekið efni sem hún pantaði í póstinum. Rannsóknin á dauða hennar er hluti af víðtækari rannsókn lögreglunnar í London á téðu efni, sem er ekki nefnt, en hefur verið kallað „sjálfsvígspakki“. Að minnsta kosti fimm hafa látist eftir að hafa innbyrt það.

Missti starfið

Jane, starfaði fyrir góðgerðasamtök og var lýst sem ástríkri, klárri og hvatvísri konu. Hún og maki hennar, Sean Gleeson, áttu saman tvíburasyni fædda árið 2017.

Jane hafði hins vegar barist við kvíða mjög lengi. Þessi kvíði jókst til muna eftir að hún missti starf sitt. Það var um það leyti sem hún virtist missa tökin og fór að leita að leiðum til að enda líf sitt.

Vildi að synirnir færu með

Sean hafði farið að heimsækja vinafólk sitt um áramótin í Hertfordshire, norðan við London. Jane krafðist þess að hann tæki synina með og sagði að hún yrði miður sín ef þeir fengju ekki að hitta vini sína. Sean vissi af andlegum erfiðleikum Jane en taldi að ástand hennar væri að skána.

Þegar Sean sneri til baka á nýársdag að heimili þeirra í austurhluta London svaraði Jane ekki. Hann bað nágranna um að passa strákana og leitaði í húsinu. Fann hann Jane loks meðvitundarlausa í kjallaranum. Hann hringdi á sjúkrabíl sem kom á þremur mínútum en það var allt of seint. Hún var látin.

Kanadískur maður til rannsóknar

Lík Jane var krufið og kom í ljós að gildi eins tiltekins eiturefnis voru 46.860 sinnum hærri en í heilbrigðum einstaklingi. Ljóst var að þetta hafði dregið hana til dauða.

Þegar farsími Jane var skoðaður kom í ljós að hún hafði leitað eftir þessu efni á netinu. Þá hafði hún farið inn á síðu sem seldi „sjálfsvígspakka“ og pantað efnið heim að dyrum með venjulegum bréfpósti. Vefsíðan er á vegum kanadísks manns sem er nú til rannsóknar lögreglu.

Pósturinn skoðar ekki í pakka

Vitað er að að minnsta kosti fimm manns hafa dáið eftir að hafa tekið efnið. Þar á meðal Zara Ampong Appiah, 30 ára gömul kona sem starfaði sem sálfræðingur. Talið er þó að dauðsföllin séu miklu fleiri. Jafn vel hátt í hundrað talsins.

Breska póstþjónustan, The Royal Mail, segist harma málið en þeir hafi ekki leyfi til þess að opna pakka og skoða innihaldið. Segja talsmenn póstþjónustunnar hins vegar að samstarf við lögregluna, tollgæslu og aðrar stofnanir sé mikið og að allir grunsamlegir pakkar séu tilkynntir.

 

Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ísland er 15. besta land í heimi – Heilsan góð en dýralífið fábreytt

Ísland er 15. besta land í heimi – Heilsan góð en dýralífið fábreytt
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sætti sig ekki við að þurfa að endurgreiða bætur – Segir stjórnvöld hafa bannað sér að vinna

Sætti sig ekki við að þurfa að endurgreiða bætur – Segir stjórnvöld hafa bannað sér að vinna
Fréttir
Í gær

Nauðgun sögð ósönnuð þótt ákærði hafi verið margsaga en brotaþoli trúverðug – „Stopp, ég vil ekki gera þetta“

Nauðgun sögð ósönnuð þótt ákærði hafi verið margsaga en brotaþoli trúverðug – „Stopp, ég vil ekki gera þetta“
Fréttir
Í gær

Risasekt rafrettukónga lækkuð í Landsrétti – Smygluðu gífurlegu magni af sígarettum

Risasekt rafrettukónga lækkuð í Landsrétti – Smygluðu gífurlegu magni af sígarettum
Fréttir
Í gær

Þremenningar í vanda: Komu til landsins með mikið magn af kókaínvökva innvortis

Þremenningar í vanda: Komu til landsins með mikið magn af kókaínvökva innvortis
Fréttir
Í gær

Benedikt harðorður: „Þetta er íslenskt heimatilbúið kjaftæði“

Benedikt harðorður: „Þetta er íslenskt heimatilbúið kjaftæði“