
Raunar gætu úrslitin orðið svo slæm að um sögulegan ósigur verði að ræða.
Sérfræðingurinn, Ross Baker, prófessor í stjórnmálafræði við Rutgers University, sagði í samtali við Dagbladet að hann telji líklegt að Repúblikanar muni bíða stærsta kosningaósigur sinn síðan 1958.
Þá voru efnahagskreppur ekki óalgengar og það var einmitt staða efnahagsmála sem varð til þess að Demókratar unnu 48 ný sæti í fulltrúadeildinni og 13 ný sæti í öldungadeildinni.
Stríðið við Íran hefur komið illa við pyngju bandarískra kjósendur því verð á mat og eldsneyti hefur hækkað mikið.
Skoðanakannanir hafa sýnt að meirihluti Bandaríkjamanna er andvígur stríðinu og allt þetta getur haft áhrif á hvar kjósendur setja X í nóvember.