
Sannleikurinn er þarna úti, sagði alríkislögreglumaðurinn Fox Mulder í þáttunum X-Files sem nutu mikilla vinsælda á tíunda áratug síðustu aldar. Mulder taldi öruggt að geimverur væru til og ætlaði sér að sanna það. Mulder og saga hans í þáttunum er skáldskapur en það sama á ekki við um gögn sem bandaríska varnarmálaráðuneytið, Pentagon, birti í byrjun mánaðar og svo aftur í dag.
Um er að ræða gögn og myndbönd sem varða óþekkt fyrirbæri í lofti, eða fljúgandi furðuhluti eins og slíkt er gjarnan kallað, en almennt er talið að geimverur þyrftu einhvern slíkan furðuhlut til að heimsækja jörðina.
🚨 Aman Tanrım! Pentagon’un az önce paylaştığı bu videoyla ağzım açık kaldı 😱
Vay be… Vay vay vay! Bu ne böyle, inanılmaz bir görüntü!
Hayretler içindeyim, gözlerime inanamıyorum. Gerçekten akıl almaz bir şey#Pentagon #Uap #Ufo pic.twitter.com/x0iD1boDDJ— KeLebek (@KeLebegindansi) May 22, 2026
Þau gögn sem birtust í dag svara engum spurningum um tilvist geimvera en þar má finna 50 myndbönd og vitnisburði frá almennum borgurum og hermönnum sem telja sig hafa séð eitthvað vafasamt á himninum.
Myndböndin eru áhugaverð og mörg koma þau frá Miðausturlöndum og eru tekin upp af herþotum Bandaríkjahers. Sem dæmi má nefna myndband frá árinu 2019 sem á að sýna óþekkt fyrirbæri á lofti fljúga í fylkingu yfir Persaflóa. Annað frá árinu 2022 sýnir fylkingu fjögurra óþekktra fyrirbæra fljúga fram hjá skipum við strendur Írans. Áhugavert myndband sem var tekið yfir Sýrlandi árið 2021 sýnir dularfullan hlut þjóta á brott á slíkum hraða að það virkar eins og ofurhröðun sem aðeins hefur sést í vísindaskáldskap.
Pentagon releases 2nd batch of UFO files, including footage of UAP over Syria showing „instantaneous acceleration.“ pic.twitter.com/NW94Sc5jM7
— AZ Intel (@AZ_Intel_) May 22, 2026
Engar skýringar fylgja myndböndunum og Pentagon hefur áður lýst því yfir að það hafi engar sannanir fyrir því að þessi óþekktu fyrirbæri komi úr geimnum. Upplýsingarnar sem birtust í dag koma úr ýmsum áttum, þar með talið frá hernum, FBI, utanríkisráðuneytinu og NASA.
Talið er líklegt að þessi birting muni kynda undir spurningunni sem hefur plagað mannkynið kynslóðum saman – Erum við ein í heiminum eða ekki? Eins er talið að gögnin muni gefa samsæriskenningum byr undir báða vængi, einkum kenningum um yfirhylmingu og leyndarhyggju stjórnvalda en vinsælustu samsæriskenningarnar halda því fram að bandarísk yfirvöld séu búin að staðfesta tilvist geimvera en haldi því leyndu fyrir almenningi.
The Pentagon on Friday released a video allegedly showing unidentified anomalous phenomena (UAP) near Iran, saying the footage was likely captured by an infrared sensor aboard a US military platform operating in the CENTCOM area in 2022, while cautioning that the material lacks a… pic.twitter.com/3z6DbHtq23
— Iran International English (@IranIntl_En) May 22, 2026
Donald Trump fyrirskipaði birtingu gagnanna í febrúar á þessu ári með vísan til gríðarlegs áhuga almennings á fljúgandi furðuhlutum. Tók hann þá fram að hann vissi ekki persónulega hvort geimverur væru raunverulegar eða ekki. Skoðanakannanir benda til þess að meirihluti Bandaríkjamanna trúi á geimverur og af þeim telur um helmingur að geimverur hafi þegar heimsótt jörðina.
Annar gagnapakki er svo væntanlegur í náinni framtíð.
The Guardian bendir á að í gögnunum í dag megi meðal annars finna lýsingar geimfara á dularfullum hlutum og ljósum. Stjarneðlisfræðingurinn frægi Neil deGrasse Tyson hefur reyndar gagnrýnt stjórnvöld fyrir að blanda upptökum úr geimförum í þennan gagnapakka. Það sé mjög misvísandi enda hafi þessar upptökur ekki verið haldnar neinni leynd og líklegast í öllum tilvikum um eðlilegar skýringar að ræða.
„Þessi gögn frá NASA voru ekki bundin neinum trúnaði og það sem geimfararnir sáu átti sér fullkomlega rökréttar skýringar.“
Það sé því ábyrgðarleysi að birta þessar upptökur í bland við frásagnir fólks sem telur sig hafa séð óþekkt og afbrigðileg fyrirbæri á lofti.