
Óprúttnir aðilar í Arizona í Bandaríkjunum sendu sérsveit heim til áhrifavaldsins Sue Jacquot, eða GrammaCrackers eins og hún kallar sig á YouTube, þar sem hún deilir myndböndum af sér að spila tölvuleiki. Sue, sem er á níræðisaldri, sló í gegn á myndbandamiðlinum með myndböndum þar sem hún spilar Minecraft með ömmubörnum sínum, Jack og Austin Self, en Jack glímir við krabbamein og hefur amma hans reynt að nýta sér vinsældirnar á YouTube til að fjármagna lyfjameðferð hans.
„Hann er búinn að fara í 200 lyfjameðferðir á um það bil einu og hálfu ári og því hafa hlaðist upp háir reikningar sem tryggingarfélagið dekkar ekki,“ sagði Sue. Fjölskyldan hóf nýlega maraþonstreymi þar sem þau spila tölvuleiki allan sólarhringinn en þegar um 15 dagar voru liðnir tilkynnti einhver til lögreglu að Sue hefði verið skotin til bana. Þetta var svokallað „swatting“ útkall, eða með öðrum orðum fölsk tilkynning til lögreglu sem leiðir til þess að sérsveitin er kölluð út.
„Við fengum símtal um að Jack hefði skotið ömmu sína til bana og að hann ætlaði að svipta sjálfan sig lífi í kjölfarið og ég var bara: vó,“ sagði Jack í samtali við fjölmiðla sem segir að atvikið hafi verið högg fyrir neðan beltisstað.
Þetta varð til þess að rúmlega tugur vopnaðra lögreglumanna ruddist inn á heimilið. Á streyminu mátti sjá lögregluna brjóta sér leið inn í svefnherbergi Sue þar sem hún lá sofandi.
„Þeir eiginlega fylgdu mér bara út og báðust afsökunar. Ég velti því bara fyrir mér hvað barnabörnin mín hefðu gert,“ sagði Sue.
Þrátt fyrir þetta ætlar Sue að halda fjáröfluninni gangandi. Hún ætlar ekki að láta þessa óprúttnu dóna ná sínu fram.
„Þeir segja mér ekki fyrir verkum. Þeir eru ekki að fara að hræða mig frá því þessu.“
Lögregla er nú með málið til rannsóknar.