fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Pressan

Svona lágmarkar þú hættuna á matareitrun frá afgöngum

Pressan
Laugardaginn 23. maí 2026 15:30

Það þarf að meðhöndla afganga á réttan hátt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir geyma matarafganga til að borða síðar enda er það eðlilegasti hlutur að borða matinn daginn eftir eða jafnvel síðar. Þetta er eitthvað sem við hugsum svo sem ekkert sérstaklega út í þegar við gerum það en það er ekki sama  hvernig við geymum afgangana.

Í umfjöllun The Independent kemur fram að oftast sé það ekki vandamál hvernig maturinn er matreiddur, heldur hvernig hann er geymdur.

Örverufræðingurinn Primrose Freestone sagði að sögn Allas að bakteríur geti þróast mjög hratt ef matur stendur lengi við stofuhita. Jafnvel þótt hann líti vel út, geti verið áhættusamt að borða hann.

Sumar matvörur þarfnast sérstakrar athygli eftir því sem segir í umfjöllun The Independent. Til dæmis þarf að setja pítsu í ísskáp í síðasta lagi tveimur klukkustundum eftir að hún er tilbúin, annars geta bakteríur byrjað að hreiðra um sig í henni.

Kjúklingur er auðvitað þekkt uppspretta matareitrunar og ef hann er ekki gegnumeldaður þá á alls ekki að borða hann. Ef hann er rétt eldaður þarf að setja hann fljótlega í ísskáp og borða innan nokkurra daga.

Hrísgrjón eru klassísk uppspretta matareitrunar. Bakteríur geta lifað suðu af og orðið virkar aftur ef grjónin eru ekki kæld hratt.

Geymsla matvæla er lykilatriði fyrir fæðuöryggið. Freestone benti á að það eigi aldrei að geyma matvæli í opnum niðursuðudósum. Það þarf að setja þau í lokuð ílát til að forðast að bakteríur berist í þau.

Ísskápur stöðvar bakteríurnar ekki alveg en hann hægir á þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Borin kennsl á líkamsleifar sex ára drengs sem hvarf árið 2022

Borin kennsl á líkamsleifar sex ára drengs sem hvarf árið 2022
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bótasvikari dæmd í fangelsi – Sagðist ekki geta gengið en keppti svo í 10 kílómetra hlaupi

Bótasvikari dæmd í fangelsi – Sagðist ekki geta gengið en keppti svo í 10 kílómetra hlaupi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Setti ótrúlegt heimsmet á Everest-fjalli

Setti ótrúlegt heimsmet á Everest-fjalli
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fyrrum embættismaður segir að Pútín sé að missa tökin á þjóð sinni – „Eru farnir að sjá fyrir sér framtíð án hans“

Fyrrum embættismaður segir að Pútín sé að missa tökin á þjóð sinni – „Eru farnir að sjá fyrir sér framtíð án hans“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ökumaður rafkrossara fékk þungan dóm: „Þessi mynd mun ásækja mig til dauðadags“

Ökumaður rafkrossara fékk þungan dóm: „Þessi mynd mun ásækja mig til dauðadags“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Stjarnan grobbar sig – Segist hafa sofið hjá 12.500 konum

Stjarnan grobbar sig – Segist hafa sofið hjá 12.500 konum