fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Enn einn skellurinn fyrir Andrés Mountbatten-Windsor – Grunaður um kynferðisbrot, svik, spillingu og fleira

Fókus
Föstudaginn 22. maí 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrés Mountbatten Windsor, fyrrum prins, er enn og aftur kominn á milli tannanna á fólki en nú er komið í ljós að rannsókn lögreglu gegn honum beinist ekki bara að meintum brotum tengdum níðingnum Jeffrey Epstein. Lögreglumenn hafa nú til rannsóknar meint kynferðisbrot, svik, spillingu, einelti og möguleg brot í opinberu starfi. Breska lögreglan hefur nú leitað á náðir almennings í málinu og óskar eftir upplýsingum um fyrrum prinsinn.

Lögreglan segist ætla að snúa öllum steinum við í rannsókninni en óttast að möguleg vitni séu hikandi við að gefa sig fram því þau standi í þeirri trú að lögreglan hafi ekki áhuga á upplýsingum sem þau telja sig búa yfir. Aðstoðarlögreglustjórinn í Thames, Oliver Wright, segir að rannsóknin sé vissulega flókin en lögregla ætli að fylgja öllum þráðum, sama hverjir þeir eru og sama hvert þeir leiða.

„Við hvetjum alla sem búa yfir upplýsingum að hafa samband við okkur,“ sagði hann. Lögreglan í Thames er eins komin í samstarf við lögregluna í London.

Oliver Wright tekur fram að lögregla hafi fengið fjölda ábendinga um meint brot Andrésar og hafi nú þegar rætt við fjölda vitna. Rannsóknin mun hafa fengið nafnið: Operation Ironville. Henni var í upphafi ætlað að upplýsa hvort að Andrés hefði lekið trúnaðarupplýsingum til Epsteins á meðan hann var sérstakur erindreki fyrir Bretland á árunum 2001-2011. Gögn málsins gáfu þó tilefni til að útvíkka rannsóknina og nú mun vera til skoðunar hvort að Andrés hafi gerst sekur um fjársvik, hagsmunaárekstra, misbeitingu valds og tilraunir til að hafa ólögmæt afskipti af störfum hins opinbera.

„Við vonum að vitni gefi sig fram. Ég vil koma því skýrt á framfæri að dyrnar okkar standa þeim opnar,“ sagði Wright og beindi þá sérstaklega máli sínu að meintum þolendum Epsteins.

Rannsóknarteymið er fjölbreytt og má þar meðal annars finna sérfræðinga í kynferðisbrotum, sérfræðinga í fjársvikum og efnahagsbrotateymi.

„Þetta verður engan veginn skjót rannsókn,“ segir Wright.

Breska lögreglan er eins í samskiptum við kollega sína í Bandaríkjunum í von um að komast yfir gögn í tengslum við rannsókn á brotum Epsteins. Að sögn fjölmiðla gæti Andrés átt allt að lífstíðarfangelsi yfir höfði sér.

News.com.au greinir frá. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur