fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Reynir reiður vegna umfjöllunarinnar um Tómas – „Mannorðsmorð á lækninum“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 22. maí 2026 21:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reynir Traustason, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri, segir að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í plastbarkamálinu feli í sér mannorðmorð á Tómasi Guðbjartssyni skurðlækni. Ábyrgð á andláti sjúklingsins sem lést í kjölfar plastbarkaígræðslu liggi hjá ítalska skurðlækninum sem framkvæmdi aðgerðina og var dæmdur í málinu í Svíþjóð, og hjá sænska ríkinu. Íslenska ríkið og Tómas eigi ekki að bera þar ábyrgð.

Sjá einnig: Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu

Reyni er heitt í hamsi vegna málsins og telur dóm héraðsdóms vera hneyksli sem verði að hnekkja á æðra dómstigi. Hann skrifar á Facebook-síðu sína:

„Dómur undirréttar yfir íslenska ríkinu vegna plastbarkamálsins og andláts Andemariams Beyene og aðildar Tómasar Guðbjartssonar hjartalæknis felur í sér mannorðsmorð á lækninum. Ríkisútvarpið má skammast sín fyrir endurtekna umfjöllun þar sem læknirinn er ítrekað sýndur í mynd í umfjöllun sem afskræmir hann. Jafnvel níðingar og morðingjar fá ekki svona óvægna umfjöllun. Nú síðast var dreginn fram Sigurður G. Guðjónsson lögmaður sem seint verður talinn sómakær eða vandur að virðingu sinni. Lögmaðurinn leyfði sér meira að segja að dylgja um rasisma í tengslum við mál Andemariams. Þarna er á ferðinni hrein og viðbjóðsleg aðför.

Öllum ætti að vera ljóst að Tómas gerði þau mistök að trúa Paolo Macchiarini sem gerði aðgerðina á Andemariam og fleirum. Sjálfur hefur Tómas gengist við því að hafa verið of trúgjarn. Óháð rannsóknanefnd hefur fallist á þá skýringu.

Það er fullkomlega eðlilegt að ekkjan fái bætur vegna andlátsins sem var alfarið á ábyrgð Macchiarini og sænska sjúkrahússins. En það eru engin skynsamleg rök fyrir því að íslenska ríkið eða Tómas beri ábyrgð í því efni.

Allir sem þekkja til Tómasar og starfa hans vita að hann er góðmenni sem hefur unnið sín störf af kærleika og bjargað fjölmörgum mannslífum. Að klína á hann manndrápi er hreint út sagt viðbjóðslegt.

Plastbarkamálið hefur legið sem mara á Tómasi í meira en áratug með gríðarlegri umfjöllun sem hefur verið vægast sagt óvægin. Hann hefur ekki kveinkað sér undan henni en þegar hann er sakaður um manndráp er nóg komið. Þessi dómur og rökstuðningur hans, hlaðinn hroða, má ekki standa óhaggaður. Þessu þarf að áfrýja í trausti þess að niðurstaðan á hærra dómstigi verði vandaðri.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ísland er 15. besta land í heimi – Heilsan góð en dýralífið fábreytt

Ísland er 15. besta land í heimi – Heilsan góð en dýralífið fábreytt
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sætti sig ekki við að þurfa að endurgreiða bætur – Segir stjórnvöld hafa bannað sér að vinna

Sætti sig ekki við að þurfa að endurgreiða bætur – Segir stjórnvöld hafa bannað sér að vinna
Fréttir
Í gær

Nauðgun sögð ósönnuð þótt ákærði hafi verið margsaga en brotaþoli trúverðug – „Stopp, ég vil ekki gera þetta“

Nauðgun sögð ósönnuð þótt ákærði hafi verið margsaga en brotaþoli trúverðug – „Stopp, ég vil ekki gera þetta“
Fréttir
Í gær

Risasekt rafrettukónga lækkuð í Landsrétti – Smygluðu gífurlegu magni af sígarettum

Risasekt rafrettukónga lækkuð í Landsrétti – Smygluðu gífurlegu magni af sígarettum
Fréttir
Í gær

Þremenningar í vanda: Komu til landsins með mikið magn af kókaínvökva innvortis

Þremenningar í vanda: Komu til landsins með mikið magn af kókaínvökva innvortis
Fréttir
Í gær

Benedikt harðorður: „Þetta er íslenskt heimatilbúið kjaftæði“

Benedikt harðorður: „Þetta er íslenskt heimatilbúið kjaftæði“