fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Pressan

Prestur sem boðið hefur afhommunarmeðferðir klæmdist við 14 ára dreng og bauð honum til sín

Pressan
Föstudaginn 22. maí 2026 18:00

Alan Chambers. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi prestur í Orlando, Florida, sem hefur skapað sér nafn við að bjóða upp á og tala fyrir mjög umdeildum meðferðum til handa hinseginfólki, meðferðum sem í daglegu tali kallast oft „afhommun“, hefur orðið uppvís að því að senda kynferðisleg skilaboð til aðila sem hann hélt að væri 14 ára drengur.

Hinn 54 ára gamli Alan  Chambers er sagður hafa byrjað að tala við leynilögreglumann sem þóttist vera unglingspiltur, í febrúar síðastliðnum. Samskiptin hófust á Snapchat en færðust síðan yfir á Telegram, auk sms-skeyta. Chambers klæmdist við lögreglumanninn, sem hann hélt að væri 14 ára unglingur, sendi honum nektarmyndir og reyndi að fá hann til að hitta sig.

Sagði Chambers þessum rafræna viðmælanda sínum að taka leigubíl til sín að skrifstofu hans í Winter Park, Florida.

Chambers var stöðvaður í akstri og handtekinn þann 19. maí og hefur verið ákærður fyrir tælingu ólögráða einstaklings í gegnum tölvu, deilingu á skaðlegu efni til ólögráða ungmennis og ólögmæta notkun á samskiptatæki.

Presturinn hefur verið látinn laus gegn tryggingu og bíður réttarhalda.

Chambers leiddi samtökin Exodus International, kristilega hreyfingu sem lagði sérstaka áherslu á áðurnefndar meðferðir fyrir hinsegin fólk. Aðferðirnar hafa verið harðlega gagnrýndar af samtökum hinsegin fólks.

Sjá nánar um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Setti ótrúlegt heimsmet á Everest-fjalli

Setti ótrúlegt heimsmet á Everest-fjalli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrrum embættismaður segir að Pútín sé að missa tökin á þjóð sinni – „Eru farnir að sjá fyrir sér framtíð án hans“

Fyrrum embættismaður segir að Pútín sé að missa tökin á þjóð sinni – „Eru farnir að sjá fyrir sér framtíð án hans“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Fyrir 4 dögum

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjölskyldan borðaði ekki ofurunnin mat í fimm ár – Þetta voru afleiðingarnar

Fjölskyldan borðaði ekki ofurunnin mat í fimm ár – Þetta voru afleiðingarnar
Pressan
Fyrir 5 dögum

Dularfullur fundur í grískum helli

Dularfullur fundur í grískum helli