
The Independent segir að í nóvember muni flugfélagið bjóða farþegum að kaupa sér pláss í koju á flugleiðinni á milli Auckland á Nýja-Sjálandi og New York í Bandaríkjunum.
Segir miðillinn þetta vera stærstu byltinguna í fluggeiranum síðan írska lággjaldaflugfélagið Ryanair íhugaði að bjóða upp á standandi pláss í vélum sínum
Ef þú verður svo heppin(n) að ná kojumiða með Air New Zealand, þá færðu ekki að liggja í kojunni alla leiðina því farþegar munu skiptast á að hvílast í þeim.
Miðinn veitir farþegum rétt til að hvílast í koju í tvisvar sinnum fjórar klukkustundir á þessari 17 klukkustunda flugleið.
Kojupláss kosta sem nemur 35.000 íslenskum krónum og bætist það verð við verð venjulegs flugmiða.