fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Pressan

Hvarf Madeleine McCann – Segir að ógeðfelldur grunur gegn McCann-hjónunum lifi enn góðu lífi

Pressan
Miðvikudaginn 20. maí 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumarið 2007 rennur Bretum seint úr minni. Þetta var sumarið sem hin unga Madeleine McCann hvarf úr rúmi sínu á hóteli sem fjölskylda hennar dvaldi á í Portúgal. Madeleine var tæplega fjögurra ára og væri hún enn á lífi hefði hún fagnað 23 ára afmæli sínu í síðustu viku. Þrátt fyrir áratugalanga leit hefur Madeleine aldrei fundist, hvorki lífs né liðin. Í öll þessi ár hefur verið horft tortryggnisaugum á foreldra hennar, nokkuð sem blaðamaður sem hefur rannsakað málið ofan í kjölinn telur að muni fylgja hjónunum þar til og ef málið verður loksins upplýst.

Margir telja líklegt að ungu stúlkunni hafi verið ráðinn bani og að hinn seki sé Þjóðverjinn Christian Brueckner. Sök hans hefur þó ekki verið sönnuð, en það hefur ekki stöðvað hann frá því að hæðast að rannsókn lögreglu en í fyrra sendi Brueckner frá sér skuggalegt bréf þar sem hann fullyrti að hann yrði aldrei ákærður fyrir morðið á ungu stúlkunni nema líkamsleifar hennar kæmu í leitirnar.

Þegar málið kom fyrst upp grunaði lögreglu þó að foreldrar stúlkunnar hefðu eitthvað með hvarfið að gera og þessi kenning lögreglunnar er tekin til skoðunar í nýrri sjónvarpsmynd á vegum Channel 5 sem byggir á yfirheyrslu lögreglunnar í Portúgal yfir móður stúlkunnar, Kate McCann. Blaðamaðurinn David James Smith skrifar um myndina hjá Independent en Smoth hefur fjallað um hvarf Madeleine nánast frá upphafi. Meðal annars var hann staddur í Portúgal þegar McCann-hjónin voru yfirheyrð og settist í framhaldinu niður með Gerry McCann og fékk ítarlegar lýsingar hans á yfirheyrslunum.

Grunsemdir sem hafa aldrei horfið

Rétt er að taka það strax fram að foreldrar Madeleine eru saklausir að mati Smiths. Hann nefnir meðal annars að það sé mjög ólíklegt að fjölmennur ferðahópurinn hafi náð að koma sér saman um að hylma yfir andlát stúlkunnar og síðan öll þagað yfir því í tæp tuttugu ár, enda viti þjóð þá þrír vita, hvað þá þegar um ræðir hóp næstum tíu fullorðinna einstaklinga. McCann-hjónin eru læknar og Smith segir að það hafi hjálpað þeim í gegnum þessa erfiðleika og þau hafi skilning á því hvers vegna grunur beindist að þeim.

„Eins og hjónin vita alltof vel þá situr aurinn eftir. Grunsemdirnar hafa aldrei horfið og munu kannski aldrei gera það, ekki nema þar til Madeleine finnst,“ skrifar blaðamaðurinn sem telur að styrkur hjónanna og seigla hafi fleytt þeim í gegnum það versta en þegar Smith ræddi við þau um 100 dögum eftir að stúlkan hvarf þá voru hjónin aðeins farin að bogna.

„Þetta er orðið mjög ógeðfellt,“ sagði þáverandi almannatengill þeirra, Justine McGuinness, við mig eftir að ég lenti í Faro. Hún hafði ekki rangt fyrir sér. Justine fann líka fyrir álaginu vegna þeirrar gríðarlegu fjölmiðlaathygli sem beindist að lögreglustöðinni í Portimao þegar Kate, og síðar Gerry, voru yfirheyrð og fengu svo formlega stöðu sakborninga.“

Sem sakborningar var tjáningarfrelsi hjónanna takmarkað á grundvelli reglna og laga sem gilda um rannsókn sakamála. Faðir Madeleine, Gerry, vildi þó ekki láta þagga niður í sér og skömmu eftir skýrslutökurnar settist hann niður með Smith til að lýsa því sem hefði gengið á í yfirheyrsluherberginu.

„Þegar ég les yfir samtal okkar þetta kvöld vekur það athygli hversu vel Gerry McCann gat sett sig í spor portúgölsku lögreglunnar. Hann skildi hvers vegna þau hjónin þóttu grunsamleg, jafnvel þó að lögreglan hefði í raun lagt saman tvo og tvo og fengið út 37 í stað 4.“

Lögreglan í Portúgal hafði undirbúið sig vel og mánuðum saman lekið upplýsingum gegn McCann-hjónunum í fjölmiðla, svo sem nöfnum ferðafélaga þeirra, sögum af meintri ofdrykkju ferðahópsins og meintri vanrækslu gegn börnunum. Ekkert af þessu stóðst þó nánari skoðun. Vendipunkturinn kom svo þegar leitarhundar frá Bretlandi virtust hafa fundið merki um blóð og líkþef í íbúð og bifreið McCann-hjónanna. Eftir þetta taldi portúgalska lögreglan að litla stúlkan hefði líklega látist af slysförum og að foreldrar hennar hefðu hylmt yfir það.

Spurði hvort lögreglan ætlaði að rústa fjölskyldunni

Kate McCann var yfirheyrð í 11 klukkustundir og fimm klukkustundir til viðbótar daginn eftir.

„Gerry lýsti því fyrir mér hvernig hann hefði grátið í yfirheyrslunni og að Kate hefði verið tekin harkalega fyrir. Hann sagði að Kate hefði verið mjög reið og ögrandi. Þegar þeir gengu á hana og báðu hana um að segja hvað raunverulega gerðist svaraði hún snúðug: „Þið eruð lögreglan, segið þið mér það?“ Hún spurði angistarfull hvort þeir væru að reyna að rústa fjölskyldu hennar.“

Þegar hjónin voru sökuð um að hafa orðið Madeleine að bana afhenti lögregla þeim lista yfir 22 atriði sem áttu að benda til sektar þeirra. Ekkert stóðst skoðun. Meðal þessara gagna var erfðaefni úr Madeleine sem fannst í íbúðinni sem hún hafði dvalið í með fjölskyldu sinni þegar hún hvarf. Hundarnir reyndust hafa gert mistök. Lögreglan hafði og hefur því ekkert í höndunum sem bendir til þess að McCann-hjónin séu sek.

Þýska lögreglan hafði lýst því yfir fyrir nokkrum árum að hún hefði gögn í höndunum sem bentu til sektar Brueckners. Þessi gögn hafa aldrei verið opinberuð en Smith rekur að breska lögreglan sé nú að vinna hörðum höndum að því að koma Brueckner til Bretlands svo hægt sé að ákæra hann. Það sem stendur helst í vegi fyrir lögreglunni eru þýsku stjórnskipunarlögin sem koma í veg fyrir framsal Þjóðverja til lands sem tilheyrir ekki Evrópusambandinu.

Smith segir að það sé dapurt en satt að þar til sá dagur rennur upp að einhver verður dreginn til ábyrgðar fyrir hvarfið þá muni McCann-hjónin aldrei ná að hreinsa sig af öllum grun.

„Því miður fyrir McCann-hjónin þá mun sorg þeirra og skýrar sannanir um sakleysi aldrei vera nóg fyrr en einhver verður ákærður og ráðgátan leysist.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum embættismaður segir að Pútín sé að missa tökin á þjóð sinni – „Eru farnir að sjá fyrir sér framtíð án hans“

Fyrrum embættismaður segir að Pútín sé að missa tökin á þjóð sinni – „Eru farnir að sjá fyrir sér framtíð án hans“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Myndband sýnir þegar tvær orrustuþotur rákust saman á flugsýningu – Allir komust lífs af

Myndband sýnir þegar tvær orrustuþotur rákust saman á flugsýningu – Allir komust lífs af
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfullur fundur í grískum helli

Dularfullur fundur í grískum helli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það