fbpx
Þriðjudagur 09.júní 2026
Fréttir

Fer fram á svör um öryggismál á Stuðlum og hvort reglur hafi verið brotnar

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 15:01

Mynd/Pjetur Sigurðsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umboðsmaður Alþingis hefur, í kjölfar ábendingar sem barst embættinu, óskað eftir svörum frá Barna- og fjölskyldustofu um hvort vottorð um öryggisúttekt, vegna nýrrar viðbyggingar, hafi legið fyrir eftir að starfsemi hófst aftur á Stuðlum eftir bruna sem varð þar árið 2024. Liggi slíkt vottorð ekki fyrir fer umboðsmaður fram á skýringar á því hvernig það samræmist ákvæðum laga og reglugerða sem leggi þær skyldur á íslenska ríkið að þau  börn sem séu vistuð á Stuðlum séu þar í húsnæði sem uppfylli allar kröfur um öryggi.

Bruninn varð í október 2024 en í honum lést 17 ára piltur sem var í vistun á Stuðlum og starfsmaður slasaðist. Eftir því sem DV kemst næst er bruninn enn til rannsóknar hjá lögreglu.

Í mars síðastliðnum sendi Húsnæðis-. mannvirkja og skipulagsstofnun frá sér skýrslu um brunann en helstu niðurstöður hennar voru þær að alvarlegir annmarkar hefðu verið á brunavörnum, virkni þeirra og eftirliti, sem hafi haft veruleg áhrif á öryggi og mannslíf.

Eftir brunann var ákveðið að Stuðlar yrðu framvegis aðeins fyrir neyðarvistun unglinga og framkvæmdir við umfangsmiklar breytingar á húsnæðinu hafa staðið yfir.

Umboðsmaður Alþingis segir í bréfi sínu til Barna- og fjölskyldustofu að embættinu hafi borist ábending um að mögulega hafi ekki legið fyrir vottorð um öryggisúttekt vegna viðbyggingar við húsnæði Stuðla, að minnsta kosti ekki eftir að starfsemi neyðarvistunar hófst þar aftur eftir brunann.

Reglur og skyldur

Minnir umboðsmaður á að samkvæmt byggingarreglugerð þurfi slík úttekt að liggja fyrir þegar mannvirki sé tekið í notkun.

Óskar umboðsmaður eftir upplýsingum um hvort vottorð um öryggisúttekt liggi fyrir vegna umræddrar viðbyggingar við húsnæði Stuðla. Liggi slíkt vottorð fyrir er þess óskað að umboðsmanni verði afhent afrit af því. Ef slíkt vottorð liggi ekki fyrir er óskað upplýsinga um ástæður þess og hvort unnið sé að því að afla slíks vottorðs og þá hvenær þess sé að vænta.

Liggi ekki fyrir vottorð um öryggisúttekt þá óskar umboðsmaður Alþingis eftir upplýsingum um hvernig það sé talið samrýmast skyldum Barna- og fjölskyldustofu, sem fari með yfirstjórn heimila og stofnana sem ríkinu beri að sjá til að séu tiltæk samkvæmt barnaverndarlögum, að vista börn sem séu svipt frelsi sínu í húsnæði sem mögulega uppfylli ekki öryggis- og hollustukröfur laga og reglugerða um mannvirki og kunni þannig ad hafa verið óheimilt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Einstaklingar sem fá þunga dóma fái ekki að skipta um nafn

Einstaklingar sem fá þunga dóma fái ekki að skipta um nafn
Fréttir
Í gær

Björgvunarsveitir sóttu ferðalanga á Mælifellssand

Björgvunarsveitir sóttu ferðalanga á Mælifellssand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hent út af framboðslistum eftir að hafa lofað voðaverk Hamas

Hent út af framboðslistum eftir að hafa lofað voðaverk Hamas
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu