
Breska blaðið Daily Mail fjallaði um niðurstöðurnar, sem byggja á yfir 1,6 milljónum viðgerðargagna frá bílum á aldrinum þriggja til fimmtán ára.
Samkvæmt úttektinni eru það einkum stórir lúxusbílar frá Land Rover, BMW, Mercedes-Benz og Audi sem koma verst út þegar litið er til bilanatíðni og viðgerðarkostnaðar.
Margir bílanna eru þekktir fyrir mikinn búnað, flókna tækni og dýra varahluti, sem getur gert viðhald eldri eintaka afar kostnaðarsamt.
Þetta eru 10 óáreiðanlegustu notuðu bílarnir samkvæmt Warrantywise:
Fyrirtækið hefur áður bent á að viðgerðir á slíkum bílum geti hlaupið á háum fjárhæðum. Í einu tilfelli nam viðgerð á Range Rover tæplega 24 þúsund pundum, jafnvirði rúmlega fjögurra milljóna íslenskra króna á núverandi gengi.
Á meðan lúxusbílarnir komu illa út í úttektinni reyndust einfaldari asískir smábílar almennt mun áreiðanlegri. Þar voru meðal annars Toyota Yaris, Kia Picanto og Toyota Aygo meðal þeirra bíla sem fengu bestu einkunnirnar þegar kemur að bilanatíðni og viðgerðarkostnaði.