
Karlmaður frá Texas flaug á dögunum til Ítalíu og var umsvifalaust handtekinn. Hann óskaði þá eftir hæli og sagðist vera á flótta undan réttarmorði sem til stæði að fremja á honum. Hann hefur nefnilega verið ákærður fyrir morð.
Þessi maður heitir Lee Mongerson Gilley og er 39 ára gamall. Á síðasta ári var hann ákærður fyrir að myrða ólétta eiginkonu sína, Christu Bauer Gilley. Það var svo á mánudaginn sem verjandi Lee upplýsti að skjólstæðingur hans hefði klippt af sér ökklaband, sem var skilyrði þess að hann fengi að ganga laus, og svo umsvifalaust flogið til Kanada. Þaðan flúði hann svo til Ítalíu þar sem hann óskaði eftir hæli enda stæði til að dæma hann til dauða þrátt fyrir að hann væri saklaus.
Eftir að Christa lét lífið í október árið 2024 sagði Lee við lögreglu að hún hefði látist vegna ofskömmtunar lyfja. Hann hafi komið að henni meðvitundarlausri og strax hafið endurlífgunartilraunir. Þær báru ekki árangur og var Christa úrskurðuð látin á sjúkrahúsi. Lögregla telur þó að Lee hafi banað eiginkonu sinni með því að þrengja að öndunarvegi hennar. Hún hafi verið með áverka og mar á andliti. Niðurstaða krufningar var að Christu hefði verið banað.
Lee viðurkenndi síðar við lögreglu að hjónin hefðu rifist á dánardeginum og að eiginkona hans hefði hvorki glímt við sjálfsvígshugsanir né fíknivanda. Hann var því ákærður fyrir morð en fékk að ganga laus gegn tryggingu og með því að samþykkja að ganga um með ökklaband. Eins var honum meinað að yfirgefa Texas án þess að afla samþykkis yfirvalda.
Að sögn lögreglu hafði Lee skipulagt flóttann og meðal annars spurst fyrir um hvernig hann gæti orðið sér úti um fölsuð skilríki svo hann gæti yfirgefið Bandaríkin. Það var á föstudaginn, 1. maí, sem lögregla fékk tilkynningu úr ökklabandinu um að það hefði verið fjarlægt.
Verjandi Lee hefur lýst yfir áhyggjum af því að fólk muni líta á flótta skjólstæðings hans sem játningu. Verjandinn segir það af og frá. Lee sé líklegast bara hræddur.
„Þetta er áhyggjuefni og ég óttast að ákæruvaldið muni halda því fram að þetta sé sönnun um sekt að hann sé á flótta, en ég held að hann sé bara hræddur.“
Eins og áður segir var Lee handtekinn á Ítalíu og mun verða framseldur. Það mun þó taka tíma.
Heimildir:
People
Click2Houston
ABC13Houston