fbpx
Þriðjudagur 05.maí 2026
Pressan

Hákarl varð brimbrettamanni að bana í Ástralíu

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 19. maí 2021 08:10

Hvíthákarl. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hákarl varð manni á sextugsaldri að bana á Tuncurry Beach í New South Wales í Ástralíu í gær. Maðurinn var á brimbretti við ströndina þegar hákarlinn réðst á hann og beit hann í efri hluta annars lærisins.

Strandgestir sáu hvað gerðist og náðu að bjarga manninum í land en ekki tókst að bjarga lífi hans þrátt fyrir miklar tilraunir.

Í kjölfarið var öllum ströndum á svæðinu lokað og leit hófst að hákarlinum. Voru flygildi meðal annars notuð við leitina.

„Þetta hefur aldrei gerst áður. Ég veit ekki til að hákarl hafi ráðist á fólk á þessu svæði áður,“ sagði Brian Wilcox, yfirmaður Lower North Coast Surf Life.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hernaðarsérfræðingur segir þetta ástæðurnar fyrir að Rússum hafi ekki gengið betur í stríðinu

Hernaðarsérfræðingur segir þetta ástæðurnar fyrir að Rússum hafi ekki gengið betur í stríðinu
Pressan
Í gær

Foreldrar beðnir um að heimila barnaníðingi að þjálfa börnin þeirra

Foreldrar beðnir um að heimila barnaníðingi að þjálfa börnin þeirra
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn varpar ljósi á af hverju svefnskortur getur veikt einbeitinguna

Ný rannsókn varpar ljósi á af hverju svefnskortur getur veikt einbeitinguna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ætla að kortleggja jarðvarma á Grænlandi

Ætla að kortleggja jarðvarma á Grænlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan