fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fókus

Dauðsér eftir því að hafa ekki tilkynnt um brot Skeggja – „Ég hefði átt að koma þessum drengjum til hjálpar“

Fókus
Mánudaginn 4. maí 2026 13:30

Skeggi Ásbjarnarson. Mynd: Skjáskot Facebook-síða Rásar 1.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum kennari við Laugarnesskóla tjáði Þorsteini J. Vilhjálmssyni fjölmiðlamanni að hann hefði á sínum tíma orðið var við að Skeggi Ásbjarnarson, kennari við skólann, væri að brjóta á börnum. Segist kennarinn, eftir samtal við sér reyndari kennara, hafa ákveðið að tilkynna ekki um það sem hann sá en viðkomandi segist sjáist mikið eftir þessari ákvörðun.

Þorsteinn greinir frá þessu í umfjöllun um Bakkakotsmálið sem hann fléttar saman við umfjöllun um mál Skeggja en umfjöllunina birtir Þorsteinn í fjölmiðli sínum TV1 Magazine.

Þorsteinn gerði fyrir nokkrum árum útvarpsþætti fyrir Rás 1 um meint kynferðisbrot Skeggja gegn nemendum í Laugarnesskóla, þar sem Skeggi var kennari í áraraðir en hann stýrði einnig barnaþætti í Ríkisútvarpinu. Þættina vann Þorsteinn í samstarfi við Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðing.

Þorsteinn getur þess í umfjölluninni og þann hluta birtir hann á Facebook-síðu sinni að hann hafi rætt við fyrrum kennara við Laugarnesskóla fyrir fjórum árum en getur þess ekki hvort frásögn viðkomandi endaði í þáttunum. Umræddur einstaklingur vildi alls ekki koma í viðtal en Þorsteinn mátti hafa frásögn hans eftir án þess að láta nafns hans getið.

Hræddir

Þorsteinn hefur það eftir kennaranum fyrrverandi að dag einn árið 1962 hafi hann unnið fram eftir í skólanum. Þegar hann hafi lokið vinnu sinni hafi hann gengið fram á gang á annarri hæð Laugarnesskóla. Þá hafi hann séð að það hafi ennþá verið ljós sem kom undan hurðinni á kennslustofunni hjá Skeggja:

„„Ég gekk að, bankaði og opnaði dyrnar. Þá sá ég að Skeggi var í stofunni með fjóra eða fimm drengi í kringum sig. Honum brá og hann varð strax mjög æstur og spurði reiðilega af hverju ég væri að trufla hann við kennslu. Ég baðst afsökunar og ég man að ég var að horfa í augunum á drengjunum um leið og ég lokaði hurðinni. Ég gleymi aldrei óttanum í andlitum þeirra, hvað mér sýndist þeir vera skelfingu lostnir.““

Eftirsjá

Kennarinn fyrrverandi segist hafa liðið ákaflega illa yfir þessu. Hann hafi ákveðið loks að tala við einn af heldri kennurum skólans og ræða þetta við hann. Sá kennari hafi hins vegar ráðlagt honum að þar sem hann væri ungur kennari og að koma undir sig fótunum, með konu og börn, ætti hann ekki að hætta á það að missa starf sitt sem kennari við Laugarnesskóla. Sagðist hinn reyndi kennari vera ansi hræddur um að skólastjórinn tæki meira mark á Skeggja en hinum unga kennara.

Kennarinn fyrrverandi segist í kjölfarið hafa ákveðið að segja ekki frá:

„Ég þagði bara um þetta og hef séð eftir því alla mína ævi.““

Þorsteinn benti þessum fyrrum samkennara Skeggja á að hann hefði ekki brotið af sér og ekki gert neitt rangt í sjálfu sér. Því er kennarinn fyrrverandi hins vegar alfarið ósammála:

„Ég hefði átt að hringja á lögregluna og láta vita af þessu. Ég hefði átt að koma þessum drengjum til hjálpar. En ég gerði það ekki og þeirri skömm hef ég þurft að lifa með alla mína ævi.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Inga greinir frá andláti föður síns – „Hann var sæll að fá að fara“

Inga greinir frá andláti föður síns – „Hann var sæll að fá að fara“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“