fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Langir vinnudagar verða fólki að bana

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 24. maí 2021 09:30

Ætli hún sofi nóg?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2016 létust 745.000 manns á heimsvísu af völdum hjartaáfalla og hjartasjúkdóma sem voru afleiðing þess að vinna minnst 55 klukkustundir á viku. Þetta er tæplega 30% aukning dauðsfalla af þessum orsökum síðan 2000.

Þetta eru niðurstöður nýrrar stórrar rannsóknar. Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að vísindamenn hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO telja að 745.000 manns hafi látist af völdum hjartaáfalla og hjartasjúkdóma, sem voru bein afleiðing langra vinnudaga, árið 2016. Þeir segja að heimsfaraldurinn geti gert stöðuna enn verri.

Rannsóknin leiddi í ljós að það eru 35% meiri líkur á að fá hjartaáfall og 17% meiri líkur á að deyja af völdum hjartasjúkdóms ef fólk vinnur 55 klukkustundir eða meira á viku samanborið við þá sem vinna í 35 til 40 klukkustundir.

Maria Neira, forstjóri umhverfisdeildar WHO, sagði að það að vinna 55 klukkustundir eða meira á viku hefði alvarlega heilsufarsáhættu í för með sér. „Það sem við viljum gera með þessar upplýsingar er að hvetja til aðgerða, að starfsfólk njóti meiri verndar,“ sagði hún.

72% þeirra sem létust voru karlmenn, miðaldra eða eldri, sem dóu margir hverjir eftir að hafa unnið langa vinnudaga árum saman. Flestir hinna látnu voru á aldrinum 60 til 79 ára og höfðu unnið 55 klukkustundir eða meira á viku þegar þeir voru á aldrinum 45 til 74 ára.

Rannsóknin náði yfir árin 2000 til 2016 en WHO segir að heimsfaraldurinn geti gert ástandið enn verra. Ástæðan er að þegar fólk vinnur heima hjá sér á það erfitt með að skilja á milli vinnunnar og einkalífsins og á sama tíma hafa verkefni aukist hjá mörgum því fyrirtæki hafa neyðst til að skera niður vegna faraldursins. WHO telur að minnsta kosti 9% fólks vinni langan vinnudag og segir að heimsfaraldurinn ýti undir þróun sem gæti leitt til lengri vinnudags.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana

Kvikmyndafyrirtæki með 21 Óskarsverðlaun á ferilskránni leggur upp laupana
Pressan
Í gær

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Við fórum heim til hans eftir stefnumótið – Síðan festist typpið hans í teinunum mínum

Við fórum heim til hans eftir stefnumótið – Síðan festist typpið hans í teinunum mínum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn

Hinir einu sönnu síamstvíburar: Kvæntust systrum og eignuðust yfir 20 börn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Önnur óhugnanleg hnífaárás í Sydney í morgun – Stunginn í beinni útsendingu

Önnur óhugnanleg hnífaárás í Sydney í morgun – Stunginn í beinni útsendingu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?