fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Sparsamir Danir slá öll met – Eiga 1.000.000.000.000 krónur á reikningum sínum

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 27. nóvember 2020 17:40

Krónurnar streymdu yfir Eyrarsund.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Danir hafa lengi búið við ágætan efnahag og margir hafa getað lagt vel til hliðar og bætt við á bankabækur sínar. Í október náðist nýr áfangi í sparnaði landsmanna þegar heildarinnlán þeirra fóru yfir 1.000 milljarða danskra króna (eina billjón) en þau urðu þá 1.020 milljarðar. Þetta var aukning um 28,6 milljarða frá í september.

Jótlandspósturinn skýrir frá þessu og vísar í nýjar tölur frá danska seðlabankanum. Þetta þýðir að hver einasti Dani, allt frá nýburum til þeirra elstu, á tæplega 175.000 krónur að meðaltali á bankabók. En auðvitað er það ekki svo að hver og einn eigi 175.000 krónur því dreifingin er ójöfn. „Tölur frá því í byrjun árs sýna að 21% innlána eru í eigu 1% viðskiptavina bankanna,“ er haft eftir Tore Stramer frá Dansk Erhverv.

Það hefur ekki haft markverð áhrif á vilja fólks til að spara að margir bankar hafa tekið upp neikvæða vexti á innlánum yfir ákveðinni upphæð.

Fyrir þá sem vilja reikna þessar upphæðir yfir í íslenskar krónur þá má geta þess að ein dönsk króna kosta nú tæplega 22 íslenskar krónur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Í gær

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Í gær

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?