fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Pressan
Laugardaginn 18. apríl 2026 11:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það leið ekki langur tími frá hugsun til framkvæmda þegar 76 ára maður uppgötvaði dróna á sveimi nærri húsi hans í bænum Nohic, sem er nærri Toulouse í suðurhluta Frakklands.

Ellilífeyrisþeginn var sannfærður um að dróninn væri á vegum glæpamanna sem væru að kanna aðstæður áður en þeir myndu brjótast inn í húsið hans. Hann fór því inn og sótti riffil og skaut síðan drónann niður með einu skoti.

BFMTV sjónvarpsstöðin skýrir frá þessu og segir að þegar dróninn lenti hafi komið í ljós að hann var ekki á vegum neinna glæpamanna því bæjaryfirvöld áttu hann. Var hann notaður til að skoða þök húsa í bænum.

Bæjarstjórinn í þessum 1.300 manna bæ sagði, svolítið pirraður að allt hefði gengið „eðlilega fyrir sig“ þar til drónanum var flogið yfir ákveðið hverfi bæjarins.

Fljótlega eftir að dróninn var skotinn niður lá ljóst fyrir hver var að verki og var ellilífeyrisþeginn handtekinn og fluttur til yfirheyrslu á lögreglustöð bæjarins. Hann var síðan látinn laus að yfirheyrslunni lokinni.

„Þetta er venjulega fínn maður en hann missti stjórn á sér,“ sagði bæjarstjórinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik
Pressan
Fyrir 2 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir gerði skelfileg mistök á skurðarborðinu

Læknir gerði skelfileg mistök á skurðarborðinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skemmtisiglingin breyttist í martröð og nú hefur 16 ára drengur verið ákærður fyrir að nauðga og bana stjúpsystur sinni

Skemmtisiglingin breyttist í martröð og nú hefur 16 ára drengur verið ákærður fyrir að nauðga og bana stjúpsystur sinni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kviðdómur fékk að heyra hrollvekjandi símtal morðingjans við móður sína

Kviðdómur fékk að heyra hrollvekjandi símtal morðingjans við móður sína