
Athena var numin á brott við heimili föður síns um kvöldmatarleytið þann 30. nóvember 2022 og játaði hinn 34 ára gamli Horner, sem á þeim tíma starfaði sem bílstjóri við pakkadreifingu fyrir FedEx, morðið.
Hún hafði verið úti að leika sér við heimili föður síns í Paradise í Texas þegar hún hvarf. Þegar stjúpmóðir hennar fór út að svipast um eftir henni fann hún pakka frá Walmart á lóðinni sem innihélt Barbie-dúkkur. Leit að Athenu bar engan árangur og fannst lík hennar nokkrum dögum síðar, eða þann 2. desember.
Sjá einnig: Mynd úr sendibílnum kollvarpaði frásögn morðingjans
Málið hefur vakið mikinn óhug í Bandaríkjunum og er nú tekist á um það hvort Tanner eigi að sæta dauðarefsingu fyrir morðið eða lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.
Upptaka úr mælaborðsmyndavél er meðal gagna málsins og fengu kviðdómendur að horfa á myndbandið við réttarhöldin. Á upptökunni heyrist Athena meðal annars spyrja Tanner: „Ertu mannræningi?“ áður en talið berst að skólanum sem hún stundaði nám við.
Augljóst var að Athena var óttaslegin og áttu kviðdómendur margir hverjir mjög erfitt með að halda aftur af tilfinningum sínum.
Áður en upptakan var sýnd í réttinum varaði dómarinn, George Gallagher, við því að þeir sem vildu ekki sjá hana skyldu yfirgefa salinn. „Ef þið haldið að þið getið ekki horft á þetta eða hlustað á þetta, farið þá núna,“ sagði hann.
Sjá einnig: Kviðdómur fékk að heyra hrollvekjandi símtal morðingjans við móður sína
Foreldrar Aþenu, Jacob Strand og Maitlyn Gandy, höfðu bæði borið vitni en voru ekki í salnum þegar myndbandið var sýnt.
Á upptökunni heyrist Horner hóta því að meiða Athenu ef hún öskrar. Hún spyr svo hvert þau séu að fara, en hann segir henni að setjast niður áður en hann hylur myndavélina þannig að aðeins hljóð heyrist eftir það.
Hann spyr hana um aldur hennar, skóla, nafn kennarans og hvort kennarinn sé góður. Hún svarar og segir honum einnig að hún eigi systur. Þá segir hann við hana: „Þú ert mjög falleg. Veistu það?“
Bíllinn stöðvast og Athena spyr: „Er þetta húsið þitt?“ Hann svarar: „Nei, ég bý ekki hér.“
Þegar hún spyr hvar hann búi segir hann: „Langt í burtu.“
Horner hélt því fram að hann hefði kyrkt Athenu eftir að hann keyrði óvart á hana á sendibílnum sem hann ók. Hann sagði að hún hefði ekki slasast alvarlega en að hann hefði „panikkað“ og sett hana inn í bílinn, þar sem hann síðan kyrkti hana.
Síðustu augnablik hennar voru tekin upp með hljóðnema í bílnum eftir að hann huldi myndavélina.
Horner sagði lögreglu að hann hefði reynt að róa hana, en þegar það tókst ekki hafi eins konar „annað sjálf“ hans, sem hann kallaði Zero, tekið yfir. „Ég gerði það ekki, en hann gerði það,“ sagði hann.
Í opnunarræðum sagði verjandi hans, Steven Goble, að heilaskaði væri ekki alltaf sýnilegur. Hann viðurkenndi að sönnunargögn gegn Horner væru yfirþyrmandi og skelfileg.
Hann sagði þó einnig að móðir Horner hefði drukkið á meðgöngu, að hann væri með einhverfu og hefði glímt við ýmis geðræn vandamál auk þess að hafa orðið fyrir mikilli blýmengun þegar hann var barn, án þess að útskýra það nánar. Hann bað kviðdómendur að dæma hann í lífstíðarfangelsi og hlífa honum við dauðarefsingu.