
Broadnax var sakfelldur fyrir að hafa skotið tvo menn til bana árið 2008. Verjendur og stuðningsmenn hans segja að verulegir annmarkar hafi verið á rannsókn málsins.
Krasniqi segist vera sannfærð um sakleysi hans og kveðst ætla að berjast fram á síðustu stundu til að fá aftökunni frestað.
Vegna strangra reglna í Texas um fanga á dauðadeild fór athöfnin á þriðjudag fram í gegnum gler og án nokkurrar líkamlegrar snertingar.
Krasniqi, sem er bresk, kynntist Broadnax þegar hún vann að meistararitgerð í alþjóðlegum mannréttindalögum, þar sem hún rannsakaði kynþáttamisrétti innan réttarkerfisins. Samskipti þeirra hófust í tengslum við rannsóknina og þróaðist sambandið síðar yfir í ástarsamband.
„Hann er greindur, kurteis og mjög vel máli farinn. Þegar maður talar við einhvern á hverjum degi í marga klukkutíma myndast sterk tenging,“ sagði hún í viðtali við This Morning í vikunni daginn fyrir brúðkaupið.
Þau trúlofuðu sig í heimsókn Tiönu í fangelsið og undirbjuggu síðan brúðkaupið þrátt fyrir að fjölskylda hennar og nánustu vinir hafi ekki sýnt sambandinu mikinn stuðning eða skilning.
Krasniqi segir ný gögn og alvarlegar efasemdir um meðferð málsins sýni að Broadnax hafi verið ranglega sakfelldur á sínum tíma.
Hún bendir meðal annars á að hann hafi verið undir áhrifum PCP-fíkniefnis þegar hann játaði glæpinn á sínum tíma, sem gæti hafa haft veruleg áhrif á dómgreind hans. Einnig vísar hún til þess að meðsakborningur hans og frændi, Damarius Cummings, hafi síðar lýst því yfir að hann einn hafi verið skotmaðurinn. Damarius fékk lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn fyrir sinn þátt.
Þá segir hún DNA-gögn í málinu aldrei hafa tengt Broadnax við morðvopnið né fatnað fórnarlambanna, heldur bent til Cummings.
Krasniqi hefur einnig gagnrýnt val á kviðdómi í málinu og telur að þar hafi komið fram skýr merki um kynþáttamismunun. Auk þess er eitt af málatilbúnaði Broadnax fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna að saksóknarar hafi notað rapplagatexta sem hann samdi sem sönnunargagn við ákvörðun refsingar.
Þrátt fyrir að áfrýjun hafi nýverið verið hafnað segist Krasniqi enn halda í vonina.
„Sönnunargögnin eru svo sterk að hann framdi ekki glæpinn að maður vonar að fólk stígi fram og berjist fyrir réttlæti,“ sagði hún.
Ef aftakan verður framkvæmd segist hún ætla að vera viðstödd.
Málið hefur vakið talsverða athygli vestanhafs, þar sem undirskriftasafnanir og herferðir hafa verið settar af stað til að reyna að stöðva aftökuna.