fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Pressan
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 09:30

David Parrish fannst látinn á laugardagskvöld.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

David Parrish, 35 ára gamall ofurhlaupari frá Dumfries í Skotlandi, lést um helgina þegar hann reyndi að setja hraðamet á Cape Wrath-leiðinni, einni erfiðustu og afskekktustu hlaupaleið Bretlands.

Parrish, fyrrverandi liðsmaður í breska hernum, lagði upp í tilraun til að verða sá hraðasti til að ljúka 376 kílómetra leiðinni frá Fort William að Cape Wrath í norðvesturhluta Bretlands.

Hann fannst látinn á afskekktu fjallasvæði í Kintail í skosku hálöndunum á ellefta tímanum á laugardagskvöld. Samkvæmt upplýsingum frá skosku lögreglunni var brugðist við þegar staðsetningarbúnaður sem hann bar sýndi að hann hefði hætt að hreyfast.

Mettilraunin var ekki aðeins persónuleg áskorun heldur einnig fjáröflun fyrir Scottish Mountain Rescue til minningar um náinn vin hans, Luke Ireland, sem lést úr ofkælingu árið 2014 eftir að veður versnaði skyndilega í fjallahlaupi við Glen Clova.

Þrátt fyrir að hafa aðeins keppt í ofurhlaupum í nokkur ár hafði Parrish þegar náð eftirtektarverðum árangri.

Árið 2023 sigraði hann Cape Wrath Ultra, sitt fyrsta ofurhlaup, á tímanum 45 klukkustundir, 28 mínútur og 48 sekúndur – næsthraðasta tíma sem náðst hefur í sögu keppninnar.

Í september í fyrra varð hann einnig fyrstur karla í Dragon’s Back, sex daga 380 kílómetra ofurhlaupi yfir fjalllendi Wales.

Cape Wrath-leiðin er þekkt fyrir afar erfiðar aðstæður, fáa stíga, votlendi og langa kafla þar sem engin mannabyggð er í nágrenninu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið