
Árásin átti sér stað síðdegis á mánudag undan strönd Kooddoo-eyju, þar sem parið hafði farið í skipulagða ferð til að synda í sjónum. Svo vill til að fiskvinnslustöð er í nágrenninu og var vitað til þess að hákarlar héldu sig í nálægð við stöðina í leit að æti.
Maðurinn, sem erlendir fjölmiðlar segja að sé 31 árs kvensjúkdómalæknir frá Alicante, var fluttur með hraði á sjúkrahús. Vegna alvarleika áverkanna neyddust læknar til að taka af honum annan fótinn fyrir neðan hné.
Eiginkona hans hefur að sögn spænskra fjölmiðla lagt fram formlega kæru hjá yfirvöldum á Maldíveyjum. Fjölskyldur parsins hafa jafnframt gagnrýnt skipuleggjendur ferðarinnar harðlega og segja ákvörðunina um að leyfa sund á þessu svæði hafa verið glannalega.
Svæðið þar sem árásin varð er þekkt meðal kafara sem svokölluð „Shark Alley“, þar sem stórir hópar hákarla sjást reglulega.
Samkvæmt staðbundnum heimildum hafði fiskvinnslan á svæðinu ekki losað fiskúrgang í nokkra daga fyrir árásina. Talið er að það kunni að hafa aukið árásargirni hákarlanna.
Parið hafði nýverið gengið í hjónaband og valið Maldíveyjar sem áfangastað í brúðkaupsferð sinni. Maðurinn var fyrst fluttur á nærliggjandi sjúkrahús en síðan flogið með þyrlu til höfuðborgarinnar Malé, þar sem hann var lagður inn á gjörgæslu.
Ættingjar eiginkonunnar hafa síðan ferðast út til Maldíveyja til að styðja hana á meðan eiginmaður hennar berst fyrir lífi sínu.
Maldíveyjar eru vinsæll ferðamannastaður, ekki síst vegna tærra hafsvæða og fjölbreytts sjávarlífs. Samhliða auknum vinsældum snorkl- og köfunarferða á svæðum þar sem hákarlar halda sig hafa þó nokkrar árásir komið upp á undanförnum árum.