fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Öldruð móðir veit ekki að sonur hennar er dáinn því hún spjallar reglulega við gervigreindartvífara hans

Pressan
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öldruð móðir í Kína missti son sinn í bílslysi í fyrra. Aðrir í fjölskyldunni ákváðu þó að halda andlátinu leyndu, enda töldu þeir að það myndi endanlega ganga frá öldruðu konunni sem er á níræðisaldri og glímir við hjartasjúkdóm. Því leituðu aðstandendur hennar til gervigreindarfyrirtækis sem er sérhæft í því að búa til tvífara fólks.

Gervigreindin fær myndir af manneskjunni sem hún á að líka eftir sem og raddupptökur, myndbönd og hvað eina sem gerir tækninni kleift að herma eftir raunverulegri manneskju. Með þessu móti nær gervigreindin að herma eftir rödd og látbragði fólks. Aldraða konan spjallar nú reglulega við gervigreindarútgáfu af syninum sem hún heldur að sé fjarverandi vegna vinnu. Hún minnir son sinn á að borða nóg, að honum verði ekki kalt og að fara varlega í ferðalögum. Gervigreindarsonurinn svarar henni af álíka hlýju og segist vera að leggja hart að sér til að safna sér peningum svo hann geti komið að heimsækja mömmu sína.

South China Morning Post segir að í einu samtalinu hafi móðirin skammað son sinn fyrir að hringja ekki nógu oft og að henni þætti leitt að fá aldrei að hitta hann í persónu.

„Ókei, mamma. En ég er mjög upptekinn. Ég get ekki spjallað lengi. Farðu vel með þig. Þegar ég er búinn að þéna nóg þá kem ég aftur heim til að sýna þér fjölskyldurækni,“ sagði gervigreindarsonurinn.

Forsprakki fyrirtækisins, Super Brain, kallast Zhang Zewei og hefur hann boðið upp á þessa þjónustu í nokkur ár. Hann segir að fyrirtæki sitt sé að hjálpa fólki, jafnvel þó það sé í raun að beita blekkingum. Zhang hefur áður lýst því í viðtali við NPR að þegar gervigreindin á að lífa upp látna manneskju skipti höfuðmáli að láta hana hafa eins mikið af upplýsingum og hægt er. Því sé ekki alltaf fyrir að fara. Því betri gögn sem gervigreindin fær, því betur getur hún leikið eftir manneskjunni sem hún á að lífga við.

„Það mikilvægasta er að klóna hugsanir manneskjunnar og kortleggja hvað hún hefur gengið í gegnum og reynt dags daglega.“

Netverjar voru furðu lostnir að lesa um öldruðu konuna. Mörgum finnst þetta falleg leið til að halda minningu látinna fjölskyldumeðlima á lofti. Öðrum finnst þetta óhuganlegt og gífurlega ósanngjarnt gagnvart öldruðu konunni sem fær ekki að syrgja son sinn því andláti hans er haldið leyndu frá henni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir gerði skelfileg mistök á skurðarborðinu

Læknir gerði skelfileg mistök á skurðarborðinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“