fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Pressan

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Pressan
Laugardaginn 18. apríl 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrew Braund og unnusta hans, Rachel Moseley, fundu óvænta leið til að greiða fyrir væntanlegt brúðkaup sitt.

Braund, aðstoðarmaður kennara og fyrrverandi safnari Pokémon-spila, fann spil að verðmæti yfir 40.000 dollara á háaloftinu í æskuheimili sínu í Dorset á Englandi.

Braund, 37 ára, fór síðan með safnið í safnspilaverslun vinar síns og hélt að þau væru virði um 500 punda. En hann komst fljótt að því að þrjú spil, sem voru ekki rétt skipulögð í möppunum, gætu verið virði tugþúsundir punda.

„Þegar vinur minn sagði mér hversu mikið Charizard-kortin gætu verið virði fékk ég nettan svima,“ sagði Braund. „Ég fékk næstum því kvíðakast, satt best að segja.“

Þessi þrjú Charizard-spil voru metin á 14.900 pund. Braunt þénaði að lokum meira en tvöfalt það, samtals 30.300 pund eftir að afa selt spilið á uppboði. Eru það um 5 milljónir króna.

Skyridge Charizard Holo Pokémon hans, sem var í toppstandi, braut Pokémonmet hjá Ewbank uppboðsfyrirtækinu og var selt fyrir 2,6 milljónir króna.

„Ég bjóst ekki við að þau væru svo mikils virði,“ sagði Braund og sagði að spilin þrjú væru úr síðustu Pokémon pökkunum  sem hann keypti. „Þau hafa hæsta fjárhagslega gildið en lægsta tilfinningalega gildið. Þau sem ég elskaði sem krakki líta út fyrir að vera slitin af því að hafa verið í vösunum mínum allan tímann. Ég hef verið mjög heppinn.“

Nú notar Braund hagnaðinn til að greiða fyrir brúðkaup sitt og Moseley í ágúst og segir að hann þurfi ekki að „hafa áhyggjur af því hvaðan peningarnir fyrir brúðkaupið koma núna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Norðurlöndin þjappa sér saman í loftinu

Norðurlöndin þjappa sér saman í loftinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki