fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Pressan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 09:00

Pútín situr fastur í Úkraínu. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt nýju lagafrumvarpi, sem hefur verið lagt fyrir rússneska þingið, verður rússneskum stjórnvöldum gert kleift að réttlæta hernaðaraðgerðir erlendis undir því yfirskini að þær séu til að vernda rússneska ríkisborgara.

Hugveitan The Institute for the Study of War skýrir frá þessu.

Frumvarpið kemur fram á sama tíma og ESB vinur að því að setja á laggirnar sérstakan dómstól sem á að rétta yfir rússneskum leiðtogum fyrir þeirra þátt í stríðinu í Úkraínu.

Sérfræðingar segja að lögunum sé ætlað að senda umheiminum og rússnesku þjóðinni, þau skilaboð að Rússar séu sterkir og hugsi um sitt fólk, jafnt innanlands sem utan.

Í augum umheimsins getur þetta virst vera tilraun til að kúga önnur lönd og fá þau til að halda aftur af sér við að handtaka og rétta yfir rússneskum ríkisborgurum.

Skilaboðin til Rússa eru að Rússland passi þá og muni ekki skilja þá eftir í löndum sem Rússar viðurkenna ekki dómstólana í.

Sérfræðingar efast þó um áhrif laganna í raunveruleikanum því þrátt fyrir að Rússland sé einræðisríki verði að teljast ólíklegt að árás verði gerð á annað land ef rússneskur ríkisborgari sé þar í haldi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Í gær

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið