
Donald Trump Bandaríkjaforseti ákvað að nýta sér sendingarþjónustuna DoorDash og pantaði heimsenda máltíð frá McDonalds í Hvíta húsinu. Sendillinn heitir Sharon Simmons en hún er kölluð DoorDash-amman og ákvað Trump að gefa henni 100 dollara í þjórfé. Myndavélarnar voru í gangi þegar sendingin kom og þar gekk Simmons að hurð forsetaskrifstofunnar og bankaði þar á dyrnar. Trump kom til dyra og sagði: „Hæ, gaman að sjá þig. Sko, þetta,“ svo leit hann á myndavélarnar og spurði: „Þetta lítur ekkert út fyrir að vera sviðsett, er það?“
Að sjálfsögðu var þetta samt sviðsett, enda fæstir vanir að bíða eftir heimsendingum með heilt tökulið og líklega hafa sendlar ekki svona óhindrað og auðvelt aðgengi að skrifstofu forseta Bandaríkjanna, öllu að jafnan. Forsetinn var þarna að reyna að vekja athygli á tímabundnum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem heimila skattafrádrátt frá tekjum í formi þjórfés. Um er að ræða aðgerðir sem þykja nokkuð vinsælar en hafa þó fallið í skuggann af Íransstríðinu.
President Trump shares a sweet moment with ‘DoorDash Grandma’ when she’s asked if the White House are a good tippers.
President Trump pulls her tip straight out of his pocket — and Sharon Simmons grins and says, „Yes, very!“ pic.twitter.com/auY0GExu19
— Fox News (@FoxNews) April 13, 2026
Simmons var spurð hvernig skattaafslátturinn hefði hjálpað henni og hún útskýrði að hún hefði á þessu ári þénað rúmlega 11 þúsund bandaríkjadali í þjórfé sem nemur tæplega 1,4 milljónum íslenskra króna. Trump er þó ekki þekktur fyrir að halda sig við efnið svo hann ákvað að nýta þennan fund með DoorDash-ömmunni til hins ýtrasta og bauð viðstöddum blaðamönnum að spyrja hann út í hvað sem er. Forsetinn fékk spurningar um Hormússundið í Íran og deilur hans við páfann. Loks mundi forsetinn að blessaður sendillinn var enn með honum svo hann sneri sér að Simmons og spurði hana hvort hún hefði kosið hann.
„Uh, kannski,“ svaraði sendillinn vandræðalega. Svo fékk hún spurningu frá blaðamanni um hvort að forsetinn hefði gefið henni gott þjórfé: „Uh, mögulega,“ sagði aumingja DoorDash-amman sem líklega lendir sjaldan í svona í vinnu sinni. Forsetinn ákvað þá að fá meira afgerandi svar frá henni með því að rétta henni 100 dollara seðil. Þá hló Simmons og svaraði að forsetinn væri vissulega gjafmildur hvað þjórfé varðar.
Af einhverri ástæðu ákvað Trump þá að spyrja Simmons um mikið hitamál í Bandaríkjunum, hvort trans konur megi keppa í íþróttum. Simmons lét þó ekki plata sig út í slíkar umræður og tók fram: „Ég hef engar skoðanir á því.“
Trump: „Ekki það? Ég held þú hafir skoðanir á því…“
DoorDash-amman: „Nei, ég er hér út af… “
Trump: „Pitsu?“
DoorDash-amman: „Nei til að tala fyrir skattfrjálsu þjórfé.“
Simmons hefur slegið í gegn í netheimum bæði fyrir það að láta ekki forsetann plata sig í taka undir með honum um málefni trans kvenna heldur líka fyrir störf sín almennt, en hún mun hafa byrjað að sendast með mat fyrir DoorDash árið 2022 til að borga fyrir krabbameinsmeðferð eiginmanns síns. Hún er mikill talsmaður þess að þjórfé verði gert skattfrjálst enda fær hún helming tekna sinna í gegnum þjórfé. Hún segir að skattaafsláttur forsetans skipti máli fyrir fólk eins og hana og eiginmann hennar. Simmons hefur samt líka verið gagnrýnd. Margir telja að hér hafi verið um vel skipulagða markaðssetningu að ræða sem hafi í raun verið auglýsing fyrir bæði forsetann og DoorDash, og töldu margir að sorgarsaga Simmons væri fölsk. Hún hefur þó stigið fram í fjölmiðlum þar sem hún fullyrðir að saga hennar sé raunveruleg þó hún gangist við því að hafa stutt við stefnur Trump í gegnum kjörtímabilið, enda sé það henni mikið hagsmunamál að þjórfé sé undanþegið skatti.
Hún sagði við Fox-fréttastofuna að hún hafi ekki viljað tjá sig um nein hitamál á þessum viðburði með forsetanum þar sem það er ekki hver hún er. Hún sé bara hefðbundnn Bandaríkjamaður eins og allir aðrir.
„Ég elska alla. Ég elska fólk hvar sem það stendur varðandi mismunandi málaflokka því þannig var ég alin upp.“
BREAKING: Trump tries to get the DoorDash lady at the White House to agree with him on his transgender policies. She refuses to do so. pic.twitter.com/h9Wfq7P2Zq
— Ed Krassenstein (@EdKrassen) April 13, 2026