fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Belgískur læknir neitaði að nota andlitsgrímu og smitaði 100 sjúklinga af kórónuveirunni

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 22. október 2020 05:13

Kórónuveira. Mynd: BSIP/UIG Via Getty Images)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Belgísk heilbrigðisyfirvöld eru gríðarlega ósátt við heimilislækni einn þar í landi sem neitaði að nota munnbindi og smitaði að minnsta kosti 100 sjúklinga af kórónuveirunni. Upp komst um málið þegar yfirvöld í Kruisem tóku eftir óvenjulegri aukningu á smitum.

Brussels Times skýrir frá þessu. Í ljós kom að flest hinna nýju smita tengdust sama lækninum. Hann hafði greinst með smit viku áður. Sjúklingar hans sögðu að hann hefði oft neitað að nota andlitsgrímu eða sett hana vitlaust á.

„Það er óskiljanlegt og algjört hneyksli að heimilislæknir geti verið svo ábyrgðarlaus. Sem læknir verður þú að vera til fyrirmyndar,“

sagði Farah Vansteenbrugge, sérfræðingur í heilbrigðismálum.

Belgía var meðal þeirra Evrópuríkja sem fóru verst út úr fyrstu bylgju heimsfaraldursins í vor og mál læknisins kemur upp á sama tíma og önnur bylgja faraldursins er skollin á landinu af fullum þunga. 11 milljónir búa í Belgíu og þar hafa 816 smit greinst á hverja 100.000 íbúa síðustu sjö daga. Aðeins í Tékklandi er smithlutfallið hærra.

Frank Vandenbroucke, heilbrigðisráðherra, segir ástandið í höfuðborginni Brussel og í suðurhluta landsins vera „það hættulegasta í Evrópu“. Hann segir að nýsmitum fjölgi svo hratt að hætta sé á að sjúkrahús landsins yfirfyllist. Hann segir að „flóðbylgja“ sé í uppsiglingu og að yfirvöld nái ekki að halda í við hana.

Belgía er í þriðja sæti á heimsvísu hvað varðar andlát af völdum COVID-19 á hverja 100.000 íbúa. Aðeins í Perú og San Marino er hlutfallið hærra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO