fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Sveinn Atli bendir á tölfræðilegt kraftaverk Miðflokksins – „Það er þrettán sinnum líklegra að þú fáir fimm eins í Yatzy í fyrsta kasti“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 13. apríl 2026 11:30

Sveinn Atli bendir á ótrúlega staðreynd um framboðslista Miðflokksins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveinn Atli Gunnarsson, samfélagsrýnir og fulltrúi í loftslagshópnum París 1,5, bendir á það sem hann kallar tölfræðilegt kraftaverk á framboðslistum Miðflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Oddvitarnir á öllum 14 listunum eru karlar.

„Tölfræðilegt kraftaverk í boði Miðflokksins?“ segir Sveinn Atli í færslu á samfélagsmiðlum sem hefur vakið töluverða athygli.

Fór Sveinn Atli yfir alla framboðslista Miðflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar á vefsíðu flokksins. Komst hann að því að flokkurinn býður fram undir eigin nafni í 14 sveitarfélögum. Í öllum tilfellum eru oddvitarnir karlar.

„Gefum okkur eitt augnablik þá „róttæku“ hugsun að konur séu tölfræðilega jafn líklegar og karlar til að búa yfir hæfni til forystu (50/50 líkur). Ef kynin væru jafn hæf, hversu líklegt er þá að 14 karlar raðist í öll oddvitasætin fyrir hreina tilviljun?“ spyr Sveinn Atli. „Svarið er: 1 á móti 16.384.“

Sæm dæmi nefnir Sveinn Atli nokkra hluti sem eru líklegri til að gerast en að Miðflokkurinn hafi ekki „óvart“ geta fundið eina hæfa konu til að leiða lista. Það er út frá tölfræðinni.

Að finna strax fjögurra blaða smára

Það er þrisvar sinnum líklegra að þú finnir fjögurra blaða smára í fyrstu tilraun (1 á móti 5.000).

Að giska strax rétt á PIN númer

Það er 60% líklegra að þú giskir á rétt fjögurra stafa PIN-númer hjá ókunnugum manni í fyrstu tilraun (1 á móti 10.000).

Að fá Yatzy í fyrsta kasti

Það er þrettán sinnum líklegra að þú fáir fimm eins í Yatzy í fyrsta kasti (1 á móti 1.296).

„Að halda því fram að þessi röðun sé byggð á „hæfni“ en ekki meðvituðu vali eða kerfisbundinni útilokun, er eins og að vinna í lottóinu og halda því fram að þú sért bara svona rosalega góður að velja tölur,“ segir Sveinn Atli að lokum. „Tölfræðin lýgur ekki, hún öskrar á okkur. Þetta er ekki tilviljun, þetta er lokaður karlaklúbbur. Ef þú trúir því að kynjaskiptingin 14-0 sé eðlileg, þá trúir þú því í raun að líkurnar á að finna hæfan karl séu 16.384 sinnum meiri en að finna hæfa konu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi
Fréttir
Í gær

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“
Fréttir
Í gær

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision