fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Ragnar fékk uppsagnarbréfið afhent og ætlar að leita réttar síns – „Eitthvað gruggugt í farvatninu“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 13. apríl 2026 17:03

Ragnar Freyr Ingvarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlar greindu frá því í síðustu viku að Ragnari Frey Ingvarssyni lækni hefði verið sagt upp störfum á Landspítalanum og starf hans lagt niður.

Sjá einnig: Uppsögn Ragnars vekur mikil viðbrögð: „Mönnum er alltaf refsað fyrir að skara fram úr“

Vakti uppsögn mikla athygli meðal almennings.

Ragnar Freyr greinir frá því að hann hafi mætt á LSH í dag og fengið uppsagnarbréfið afhent. Segir hann að það hafi verið átakanlegt að hlusta á skýringar framkvæmdastjóra á uppsögninni.

„Í þeim er ekki heil brú. Þar sem rökin voru engin læðist sá grunur að manni að það sé eitthvað gruggugt í farvatninu. Að einhver annarleg sjónarmið hafi ráðið för. Að staða mín sem formaður stéttarfélags hafi leikið hlutverk og að störf mín væru einskis metin.“

Ragnar Freyr segist geta staðfest að honum var boðið aukið starfshlutfall á spítalanum og við það falli þá augljóslega niður rökin um að það sé verið að leggja niður starfið vegna ríkrar aðhaldskröfu.

„Það boð get ég vitaskuld ekki þegið þar sem ég hef jafnframt aðrar skyldur, síðasta áratug hef ég rekið stofu þar sem ég ber ábyrgð á meðferð þúsunda einstaklinga og síðustu tvö og hálft ár hef ég verið formaður Læknafélags Reykjavíkur, sem er stéttarfélag. Þeim skyldum gengur maður ekki frá svo gjörla. Og kannski er leikurinn til þess gerður,  að opna dyr sem ómögulegt er fyrir mig að stíga í gegnum.“

Segist Ragnar Freyr glaður hafa viljað halda óbreyttri stöðu líkt og hann hafi oft nefnt áður.

Ragnar fékk uppsagnarbréfið afhent og ætlar að leita réttar síns – „Eitthvað gruggugt í farvatninu“

„Ég trúði vart eigin eyrum. Um lögmæti þessa gjörnings verður látið á reyna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð