fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. mars 2026 16:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gul viðvörun er nú í gildi vegna eldinga á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi.

Á Suðurlandi tók viðvörunin gildi klukkan 12:30 en á Höfuðborgarsvæðinu klukkan 15.

Báðar viðvaranir eru í gildi til klukkan 18.

Á vef Veðurstofu Íslands segir að búist sé við þrumuveðri með tíðum eldingum. Forðast beri vatn, hæðir í landslagi og berangur.

Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Nánari upplýsingar um viðbrögð við eldingaveðri er á upplýsingasíðu almannavarna. Fram kemur á vef Veðurstofunnar að yfir 100 eldingar á klukkustund hafi mælst í dag við landið.

Eldinga hefur orðið vart til að mynda í Mosfellsbæ og Þorlákshöfn þar sem er rafmagnslaust en talið er það sé vegna eldingar sem laust niður.

Þrumuveðrið ætti að færast vestur á bóginn í kvöld en miðað við spákort Veðurstofunnar gæti þrumuveður mögulega skollið aftur á Suður- og Suðvesturlandi á morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir