fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
433Sport

Manchester United staðfestir nýjan samning Michael Carrick

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 22. maí 2026 10:06

Michael Carrick

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur staðfest að Michael Carrick verði áfram knattspyrnustjóri félagsins eftir að hafa skrifað undir nýjan samning sem gildir til ársins 2028.

Carrick tók við liðinu í janúar og hefur náð frábærum árangri á stuttum tíma. United tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili undir hans stjórn og vann 11 af fyrstu 16 leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.

Fyrrum miðjumaðurinn fékk einnig verðlaunin sem stjóri mánaðarins eftir sigra gegn bæði Manchester City og Arsenal í fyrstu leikjum sínum við stjórnvölinn.

Carrick er einn sigursælasti leikmaður í sögu Manchester United en hann lék 464 leiki fyrir félagið og vann meðal annars fimm Englandsmeistaratitla, Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildina.

„Frá fyrsta degi fyrir 20 árum fann ég fyrir töfrunum í Manchester United,“ sagði Carrick eftir undirritunina.

„Það fyllir mig stolti að leiða þetta sérstaka félag. Nú þurfum við að halda áfram saman með skýran metnað og markmið.“

Jason Wilcox, yfirmaður knattspyrnumála hjá United, sagði að Carrick hefði sannarlega unnið sér inn tækifærið. „Við höfum ekki aðeins séð góð úrslit heldur einnig nálgun sem passar fullkomlega við gildi og sögu félagsins,“ sagði Wilcox.

Stuðningsmenn United hafa tekið vel í ráðninguna enda hefur liðið sýnt miklar framfarir síðan Carrick tók við stjórnartaumunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Heimsfrægir menn gómaðir á leið út af nektardansstað snemma morguns – Sjáðu myndbandið

Heimsfrægir menn gómaðir á leið út af nektardansstað snemma morguns – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Áhugaverður landsliðshópur Þýskalands – Fertugur snýr hann aftur og stór nöfn fá ekki kallið

Áhugaverður landsliðshópur Þýskalands – Fertugur snýr hann aftur og stór nöfn fá ekki kallið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Lið ársins í ensku úrvalsdeildinni út frá tölfræði

Lið ársins í ensku úrvalsdeildinni út frá tölfræði
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Herða tökin gegn þeim sem nota ólöglega sjónvarpsþjónustu – Gríðarleg aukning á síðustu árum

Herða tökin gegn þeim sem nota ólöglega sjónvarpsþjónustu – Gríðarleg aukning á síðustu árum
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Staðfesta andlát hins 16 ára drengs – Faðir hans er þekktur rokkari

Staðfesta andlát hins 16 ára drengs – Faðir hans er þekktur rokkari
433Sport
Í gær

Diet Pep er gælunafnið á næsta stjóra Manchester City

Diet Pep er gælunafnið á næsta stjóra Manchester City