

Thomas Tuchel hefur valið landsliðshóp Englands fyrir Heimsmeistaramótið og nokkur stór nöfn sitja eftir heima. Þjóðverjinn staðfesti hópinn í dag og sagði ákvörðunina um að skilja Harry Maguire, Cole Palmer og Trent Alexander-Arnold eftir hafa verið „sársaukafulla“ en rétta fyrir liðið.
Harry Kane leiðir hópinn sem fyrirliði og fær stuðning í sókninni frá Ollie Watkins, Ivan Toney, Bukayo Saka, Marcus Rashford og Anthony Gordon.
Í miðjunni eru meðal annars Jude Bellingham, Declan Rice, Kobbie Mainoo og Morgan Rogers, á meðan Elliot Anderson frá Nottingham Forest fær einnig sæti í hópnum eftir frábært tímabil.
Í varnarlínunni eru John Stones, Marc Guehi, Ezri Konsa og Dan Burn meðal valinna leikmanna. Reece James og Tino Livramento verða í bakvarðarstöðunum.
Jordan Pickford verður að öllum líkindum fyrsti markvörður liðsins en Dean Henderson og James Trafford fylgja honum í hópnum.
Tuchel sagði að jafnvægi, form og liðsheild hefðu ráðið miklu í valinu á hópnum.
Hópur Englands:
Markverðir: Jordan Pickford, Dean Henderson, James Trafford.
Varnarmenn: Reece James, Tino Livramento, Marc Guehi, Ezri Konsa, John Stones, Jarell Quansah, Nico O’Reilly, Dan Burn, Djed Spence.
Miðjumenn: Declan Rice, Elliot Anderson, Jude Bellingham, Jordan Henderson, Morgan Rogers, Kobbie Mainoo, Eberechi Eze.
Sóknarmenn: Harry Kane Ivan Toney, Ollie Watkins , Bukayo Saka , Noni Madueke , Marcus Rashford , Anthony Gordon