fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fréttir

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. maí 2026 13:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og flestir vita þá fékk Sjálfstæðisflokkurinn flest atkvæði í borgarstjórnarkosningunum um helgina og Hildur Björnsdóttir oddviti flokksins hefur pálmann í höndunum þegar kemur að myndun nýs meirihluta í borgarstjórn. Egill Helgason sjónvarpsmaður veltir fyrir sér miklum fjölda kosningaloforða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og bendir á að þegar Davíð Oddson leiddi flokkinn í borginni og síðan í landstjórninni hafi ekki verið venjan að hafa loforðin svona gríðarlega mörg. Agli telst til að á vefsíðu Sjálfstæðisflokksins hafi 152 kosningaloforð verið gefin.

Egill skrifar um þetta í Facebook-pistli:

„Mér yfirsást þetta fyrir kosningar en hér er dálítið merkilegur listi, loforðalisti Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Hann er mjög langur – hvorki meira né minna en 152 liðir. Á sínum tíma var frægt að Francois Mitterrand setti fram lista með 110 loforðum, það var fyrir forsetakosningarnar í Frakklandi 1981 þar sem hann sigraði. Og nei, hann gat ekki staðið við allt. Davíð Oddsson var vanur að birta auglýsingum með fáeinum vel völdum loforðum fyrir kosningar og svo þegar komu næstu kosningar birti hann lista með því sem hafði verið efnt. En yfirleitt voru það ekki nema svona 10 loforð. 152 er dálítið annar handleggur – en þó verður að taka fram að loforðin á listanum eru misstór og sum dálítið loðin. Ég mæli þó með því að áhugasamir hlaði niður loforðalistanum – svona áður en hann verður látinn hverfa.“

Loforðin

Umræddur listi með þessum á annað hundrað loforðum er enn sem komið er aðgengilegur á vefsíðu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Loforðin eru tímasett en sum þeirra á að uppfylla á innan við hundrað dögum eftir að flokkurinn tekur við völdum í borginni. Önnur á að uppfylla innan árs og enn önnur á næstu 4 árum. Loks er hluti loforðanna ódagsettur og sagt að þau verði uppfyllt í framtíðinni en þar á meðal eru t.d. að koma öllum börnum í Reykjavík í virkt íþrótta- eða tómstundastarf, gera Reykjavík að útivistarborg og menningarborg á heimsmælikvarða og að borgin verði besti staður í heimi til að eldast á.

Loforðin eru eins og Egill segir misstór og misskýr en þar sem ekki blasir annað við en Sjálfstæðismenn séu að komast í aðstöðu til að uppfyllla öll þessi loforð mun koma í ljós hvernig það gengur og hvort uppgefin tímamörk standast eða hvort loforðin séu of mörg til að hægt sé að uppfylla þau öll með góðu móti. Í athugasemdum við pistil Egils er hins vegar minnt á að þessi fjöldi loforða sé ekki einsdæmi í íslenskum stjórnmálum á síðari árum.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur

Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“ 

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“ 
Fréttir
Í gær

Bandaríkjaþing samþykkir útnefningu hins umdeilda sendiherra Billy Long – Grínaðist með innlimun Íslands

Bandaríkjaþing samþykkir útnefningu hins umdeilda sendiherra Billy Long – Grínaðist með innlimun Íslands
Fréttir
Í gær

Misjafnir dómar um kannabis-gistiheimilið í Þverholti: „Það hefði verið betri kostur að sofa í bílnum“

Misjafnir dómar um kannabis-gistiheimilið í Þverholti: „Það hefði verið betri kostur að sofa í bílnum“
Fréttir
Í gær

Sakaði Icelandair um að standa sig ekki í stykkinu í kjölfar skellsins í október en hafði ekki erindi sem erfiði – „Smá snjófjúk“

Sakaði Icelandair um að standa sig ekki í stykkinu í kjölfar skellsins í október en hafði ekki erindi sem erfiði – „Smá snjófjúk“
Fréttir
Í gær

Fær bætur eftir að geðlyf hafði skelfilegar aukaverkanir

Fær bætur eftir að geðlyf hafði skelfilegar aukaverkanir