fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Segir Reykjavík hafa breyst töluvert frá hans ungdómsárum – „Ef einhver tók upp gítar og spilaði greip lögregla einatt í taumana“

Fókus
Föstudaginn 22. maí 2026 10:30

Mynd: Reykjavíkurborg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Egill Helgason sjónvarpsmaður og Reykvíkingur segir að borgin hafi breyst töluvert frá því að hann var ungur. Áður hafi verið mikið meira um boð og bönn en Reykjavík í dag sé mun skemmtilegri og frjálslegri en hún var á hans yngri árum.

Egill rifjar upp þróun borgarinnar í pistli á Facebook nú í morgun.

Hann segir að honum hafi ekki liðið illa í borginni á sínum yngri árum en hún hafi verið öðruvísi en nú. Mikið hafi verið um boð og bönn:

„Það var til dæmis ekki heimilt að setja stóla og borð fyrir utan veitingastaði – ef einhverjum veitingamanninum datt það í hug kom lögreglan undireins og stöðvaði athæfið. Ungmenni þessa tíma sátu semsé ekki á útiveitingahúsum, mig minnir að helsti staðurinn hafi verið stéttin framan við Útvegsbankann, þar var skjól í þeim vísi að göngugötu sem þar hafði verið tekin í gagnið. Engir stólar eða borð þó, við sátum bara á gangstéttinni og kannski vín í poka úr Ríkinu. Það voru heldur varla til kaffi- eða veitingahús sem höfðuðu til ungs fólks – ekki nema Mokka og Café Tröð. Öldurhúsin þar sem áfengisneyslan fór fram voru opin til 1 á föstudögum og 2 á laugardögum.“

Reglur og drykkja

Egill minnir á að reglur um skemmtistaði hafi verið stífar og bjórbannið hafi stuðlað að mikilli drykkju á sterku áfengi:

„Sá hængur var á að samkvæmt reglum urðu gestir að vera komnir inn í húsið einum og hálfum tíma fyrir lokun því þá var dyrum skellt. Sá sem ætlaði að dansa á föstudagskvöldi varð því að mæta í síðasta lagi 11.30. Bjór var ekki leyfður og allir drukku sterk vín og afleiðingin var sú að ölvun var mikil og almenn. Það tíðkaðist lítt að drekka létt vín á veitingahúsum – nema þá á fínum veitingastöðum eins og Holtinu, Naustinu og Grillinu. Almenningur fór ekki oft á slíka staði.“

Egill rifjar einnig upp að það hafi verið illa séð að spila á hljóðfæri á götum borgarinnar:

„Hljóðfærasláttur var illa séður á götum úti. Ef einhver tók upp gítar og spilaði greip lögregla einatt í taumana og fjarlægði viðkomandi. Listamaðurinn Stefán frá Möðrudal spilaði stundum á harmóníkku þegar vel viðraði, en það var heldur ekki vel séð.“

Segir Egill að lokum borgina að þessu leyti hafa breyst til hins betra:

„Tímarnir hafa breyst og margt þokast í frjálsræðisátt. Reykjavík eins og hún var í góða veðrinu í gær er mun skemmtilegri og frjálslegri en borgin sem ég ólst upp í.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur