fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Sætti sig ekki við að þurfa að endurgreiða bætur – Segir stjórnvöld hafa bannað sér að vinna

Ritstjórn DV
Föstudaginn 22. maí 2026 10:30

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrskurðarnefnd velferðarmála hafnaði því nýlega að endurupptaka úrskurð sinn í máli konu sem krafin var um endurgreiðslu atvinnuleysisbóta af Vinnumálastofnun en nefndin hafði vísað kæru konunnar, vegna ákvörðunar stofnunarinnar, frá. Sagðist konan hafa misst vinnuna í kjölfar aðgerða stjórnvalda vegna Covid19-heimsfaraldursins og taldi hún þær aðgerðir tilefnislausar og að stjórnvöld hefðu hreinlega bannað sér að vinna.

Vinnumálastofnun krafði konuna um endurgreiðslu atvinnuleysisbóta sem hún fékk greiddar fyrir tímabilið mars til desember 2023. Sagði stofnunin konuna hafa fengið ofgreiddar bætur þar sem hún hefði á þessu tímabili haft fjármagnstekjur sem hún hefði ekki tilkynnt stofnuninni um. Mótmælti konan og krafðist þess að stofnunin endurskoðaði ákvörðun sína. Vinnumálastofnun tók málið upp að nýju en komst að sömu niðurstöðu. Kærði hún þá ákvörðunina til úrskurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti að henni bæri að endurgreiða hinar ofgreiddu bætur. Konan fór hins vegar fram á að nefndin tæki málið fyrir að nýju þar sem hún hefði ekki fengið aðgang að öllum gögnum málsins.

Andstöðu

Konan vildi meina að það væri í andstöðu við andmælarétt, rannsóknarreglu og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga að hún hefði ekki fengið afhent öll gögn áður en nefndin kvað upp úrskurð í máli hennar. Krafðist hún þess að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi vegna verulegs annmarka á málsmeðferð.

Í erindi konunnar kom fram að málið varðaði atvinnuleysisbætur sem hún hafi fengið greiddar á tímum Covid. Þó kemur fram í úrskurði nefndarinnar að bæturnar hafi verið greiddar út á árinu 2023 en þá var faraldrinum og aðgerðum stjórnvalda vegna hans lokið.

Óskaði konan eftir því að mál hennar yrði tekið fyrir að nýju og að ákvörðun Vinnumálastofnunar yrði felld úr gildi. Þegar hún hafi loks fengið aðgang að umsóknargögnum sínum hafi komið skýrt í ljós að hvorki hafi verið spurt sérstaklega um útleigu fasteignar né gerð grein fyrir því að slíkar greiðslur gætu haft áhrif á rétt til atvinnuleysisbóta. Engar leiðbeiningar hafi verið veittar um að tilkynna þyrfti slíkt. Hún hafi áður fengið þau svör frá lánastofnun að þessar greiðslur teldust ekki sem tekjur og því ekki haft neina ástæðu til að skrá þær sérstaklega. Ekki hafi verið um laun að ræða heldur leigutekjur sem hafi farið beint upp í fasteignagjöld og rekstrarkostnað.

Sagði konan að þessar greiðslur vegna útleigu á fasteign hennar, sem urðu til þess að hún var krafin um endurgreiðslu atvinnuleysisbóta, hafi verið gefnar upp í skattframtali og skattlögð samkvæmt lögum. Það ætti að liggja fyrir að hún hafi ekki haft neinn ásetning um að leyna neinu. Ef hún hefði ætlað að fela eitthvað hefði verið auðvelt að fá þetta greitt með öðrum hætti. Hún hafi ekki gert það þar sem henni hafi þótt þetta rétt og eðlilegt og það eitt ætti að sýna að hún hafi ekki brugðist trausti, heldur fylgt lögum og skráð allt eftir bestu vitund.

Bannað

Sagði konan að á umræddu tímabili hafi henni beinlínis verið bannað að stunda vinnu vegna opinberra fyrirmæla stjórnvalda. Það kemur ekki fram í úrskurðinum við hvað hún starfaði áður en faraldurinn braust út og stjórnvöld settu ýmsar hömlur á daglegt líf til að sporna við útbreiðslu veirunnar. Eins og áður segir kemur hins vegar fram í úrskurðinum að málið varði bætur sem greiddar voru út árið 2023 en þá var faraldrinum lokið og engar takmarkanir á atvinnustarfsemi eða annað í landinu lengur í gildi.

Vildi konan meina að vegna þessara opinberu fyrirmæla hafi hún ekki haft um neitt annað að velja en að sækja um atvinnuleysisbætur. Síðar hafi komið í ljós að nánast allar aðgerðir stjórnvalda hafi verið illa rökstuddar og byggðar á veikum eða ólögmætum forsendum. Sóttkví og útgöngubann hafi beinst að heilbrigðu fólki sem hafi fengið jákvætt svar úr óáreiðanlegu PCR-prófi og verið látið sitja heima einkennalaust. Þá hafi verið sett á grímuskylda þrátt fyrir að fyrir lægi að grímur veittu ekki vörn. Tveggja metra reglan hafi verið uppspuni en ekki vísindi. Samfélagslegur þrýstingur hafi verið mikill á að fólk færi í sprautu sem veitti ekki vörn gegn smiti og valdi nú alvarlegum aukaverkunum og veikindum hjá fjölda fólks.

Það kemur ekki fram að konan hafi rökstutt þessar fullyrðingar sínar með einhverjum gögnum.

Sagði konan að greiðslurnar sem hún hafi fengið frá Vinnumálastofnun á þessum tíma hafi verið verulega undir lágmarks framfærslu. Nú væri þess krafist að þær yrðu endurgreiddar vegna atriða sem hvorki hafi verið spurt um né leiðbeint um í umsóknarferlinu. Slík afstaða einkenndist af siðferðislegu skilningsleysi á þeim aðstæðum sem hún hafi verið neydd í. Það væri ekki aðeins afar ósanngjarnt heldur ómannlegt að sækja fé langt aftur sem hafi verið veitt í neyð vegna aðstæðna sem ríkið sjálft hafi skapað.

Engin endurupptaka

Í niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála um endurupptöku fyrri úrskurðar nefndarinnar í málinu segir að samkvæmt stjórnsýslulögum sé heimilt að taka upp mál, sem stjórnvald hafi tekið ákvörðun um, að nýju ef ákvörðun hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hafi byggst á atvikum sem breyst hafi verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Aðili máls kunni einnig að eiga rétt á endurupptöku máls á grundvelli ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar, til að mynda ef efnislegur annmarki sé á ákvörðun stjórnvalds.

Nefndin segir að í málinu séu þessi skilyrði ekki fyrir hendi og raunar hafi málinu verið vísað frá á grundvelli þess að kærufrestur hafi verið liðinn. Gögn málsins bendi heldur ekki til þess að niðurstaðan hafi verið röng.

Er því kröfu konunnar um endurupptöku úrskurðar nefndarinnar í máli hennar hafnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Dagur saumar að sægreifunum: „Þennan leik er löngu tímabært að jafna“

Dagur saumar að sægreifunum: „Þennan leik er löngu tímabært að jafna“
Fréttir
Í gær

Unglingur veittist að börnum við ærslabelg í Kópavogi – „Dóttir mín og fleiri börn urðu fyrir áfalli“

Unglingur veittist að börnum við ærslabelg í Kópavogi – „Dóttir mín og fleiri börn urðu fyrir áfalli“
Fréttir
Í gær

Þremenningar í vanda: Komu til landsins með mikið magn af kókaínvökva innvortis

Þremenningar í vanda: Komu til landsins með mikið magn af kókaínvökva innvortis
Fréttir
Í gær

Íslensk OnlyFans-stjarna fær frádrátt frá skatti vegna kaupa á undirfötum

Íslensk OnlyFans-stjarna fær frádrátt frá skatti vegna kaupa á undirfötum
Fréttir
Í gær

Elliði bendir á sturlaða staðreynd um stýrivaxtahækkunina í morgun – „Takk fyrir túkall“

Elliði bendir á sturlaða staðreynd um stýrivaxtahækkunina í morgun – „Takk fyrir túkall“