fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
433Sport

Staðfest að Guardiola hættir með City – Sendir frá sér hjartnæmt kveðjumyndband

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 22. maí 2026 10:18

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola hefur staðfest að hann muni láta af störfum sem knattspyrnustjóri Manchester City eftir tímabilið og þar með lýkur einu sigursælasta tímabili í sögu félagsins.

Spánverjinn tók við City árið 2016 og hefur umbreytt félaginu á síðasta áratug. Undir hans stjórn vann Manchester City alls 20 stóra titla, þar á meðal sex Englandsmeistaratitla og Meistaradeild Evrópu, sem gerir hann að sigursælasta stjóra í sögu félagsins.

Þrátt fyrir að hætta sem stjóri mun Guardiola áfram tengjast City Football Group sem alþjóðlegur sendiherra. Hann mun sinna ráðgjöf og sérstökum verkefnum innan samstæðunnar.

Í tilfinningaþrunginni kveðju til stuðningsmanna rifjaði Guardiola upp ógleymanleg augnablik frá tíma sínum í Manchester.

„Ekkert er eilíft. Djúpt inni veit ég að þetta er rétti tíminn,“ sagði Guardiola.

Hann talaði einnig um tengsl sín við borgina Manchester og fólkið þar. „Þetta er borg sem byggð er á vinnu, samstöðu og baráttu. Ég lærði að skilja það og liðin mín líka,“ sagði hann.

Guardiola minntist einnig á stuðninginn sem hann fékk eftir hryðjuverkaárásina í Manchester Arena og þegar móðir hans lést á Covid-tímanum.

Í lok kveðjunnar þakkaði hann stuðningsmönnum félagsins fyrir árin saman.

„Þið vitið það kannski ekki enn, en þið eruð að skilja eftir arfleifð. Þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt. Ég elska ykkur öll,“ sagði Guardiola.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Heimsfrægir menn gómaðir á leið út af nektardansstað snemma morguns – Sjáðu myndbandið

Heimsfrægir menn gómaðir á leið út af nektardansstað snemma morguns – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Áhugaverður landsliðshópur Þýskalands – Fertugur snýr hann aftur og stór nöfn fá ekki kallið

Áhugaverður landsliðshópur Þýskalands – Fertugur snýr hann aftur og stór nöfn fá ekki kallið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Lið ársins í ensku úrvalsdeildinni út frá tölfræði

Lið ársins í ensku úrvalsdeildinni út frá tölfræði
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Herða tökin gegn þeim sem nota ólöglega sjónvarpsþjónustu – Gríðarleg aukning á síðustu árum

Herða tökin gegn þeim sem nota ólöglega sjónvarpsþjónustu – Gríðarleg aukning á síðustu árum
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Staðfesta andlát hins 16 ára drengs – Faðir hans er þekktur rokkari

Staðfesta andlát hins 16 ára drengs – Faðir hans er þekktur rokkari
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Diet Pep er gælunafnið á næsta stjóra Manchester City

Diet Pep er gælunafnið á næsta stjóra Manchester City