fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

Kristrún fékk óvenjulega gjöf frá forsætisráðherra Indlands

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 21. maí 2026 12:30

Kristrún fundaði með Modi í Osló. Skjáskot/X

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristrún Frostadóttir fékk óvenjulega gjöf frá Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, á fundi þeirra í Osló. Fékk hún forláta ísöxi, endurgerð af öxi Tenzing Norgay sem kleif Everest fjall fyrstur manna ásamt Edmund Hillary.

Kristrún og aðrir leiðtogar Norðurlandanna funduðu með Modi þann 19. maí. Ræddi hún samstarf og viðskipti á ýmsum sviðum við indverska forsætisráðherrann, svo sem orkumál, sjávarútveg, jarðvarma og kolefnisförgun.

Modi kom með gjafir til norrænu ráðamannanna. Meðal annars fékk Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, málverk, og Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, vasa.

Kristrún fékk ísöxi í kassa, uppstilltri með myndum af Tenzing Norgay og upplýsingum um afrek hans. Öxin er endurgerð af þeirri sem Sjérpinn Norgay notaði í leiðangrinum fræga með hinum nýsjálenska Edmund Hillary árið 1953, þegar þeir klifu fyrstir manna hæsta tind veraldar, Everest.

Segir að gjöfin sé vel við hæfi fyrir Ísland, sem sé nátengt hrjóstrugri náttúru, jöklum og ævintýramennsku. Ísöxin er einfalt verkfæri, úr stáli og timbri, sem hentar vel til fjallamennsku. Hún er tákn fyrir úthald, virðingu fyrir náttúrunni og landkönnunarandanum sem einkenni bæði Himalayja fjöll og Norðurlöndin.

Ísöxin er endurgerð af þeirri sem Norgay notaði árið 1953. Skjáskot/X
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einar rýnir í veðrið í júlí: Landsmenn gætu átt von á góðu

Einar rýnir í veðrið í júlí: Landsmenn gætu átt von á góðu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mynd úr íslenskum söluturni árið 1998 kveikir fjörugar umræður um verðlag í dag

Mynd úr íslenskum söluturni árið 1998 kveikir fjörugar umræður um verðlag í dag
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill fullur kvíða í verslunum

Egill fullur kvíða í verslunum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir bræður finna varla fyrir sársauka – Beit af tungunni án þess að finna fyrir því

Íslenskir bræður finna varla fyrir sársauka – Beit af tungunni án þess að finna fyrir því