fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

Trump og Netanjahú sagðir hafa átt í hörðum skoðanaskiptum um næstu skref í Íran

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. maí 2026 14:07

Trump og Netanjahú. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, áttu í hörðum orðaskiptum í löngu símtali um framhald átakanna við Íran, samkvæmt frétt Channel 12 í Ísrael.

Deilan er sögð hafa snúist um hvort hefja ætti hernaðaraðgerðir að nýju gegn írönskum stjórnvöldum eða halda áfram diplómatískum viðræðum.

Samkvæmt fréttinni telur Netanjahú að litlar líkur séu á því að áframhaldandi samningaviðræður við írönsk yfirvöld leiði til samkomulags og vill hann að hernaðaraðgerðir hefjist á nýjan leik.

Trump er hins vegar sagður vilja leggja meiri áherslu á samkomulag sem fæli í sér að Íranar hættu kjarnorkuáætlun sinni áður en gripið yrði aftur til hernaðaraðgerða.

Samkvæmt frétt Daily Mail átti símtalið sér stað aðeins nokkrum klukkustundum eftir að New York Times greindi frá því að Ísraelar hefðu, með samþykki Bandaríkjastjórnar, undirbúið áætlun um stjórnarskipti í Íran á fyrstu dögum stríðsins.

Samkvæmt umfjöllun blaðsins fólst áætlunin meðal annars í því að gera Mahmoud Ahmadinejad, fyrrverandi forseta Írans, að nýjum leiðtoga landsins eftir að Ayatollah Ali Khamenei hefði verið felldur í loftárásum Ísraela.

Ekki hefur verið staðfest opinberlega að slík áætlun hafi verið til staðar og bandarísk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig um málið.

New York Times segir að áformin hafi runnið út í sandinn strax á fyrsta degi átakanna þegar Ahmadinejad særðist í árás Ísraela á heimili hans í Teheran. Árásin hafi átt að losa hann úr stofufangelsi, en síðan hafi ekkert spurst til hans opinberlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einar rýnir í veðrið í júlí: Landsmenn gætu átt von á góðu

Einar rýnir í veðrið í júlí: Landsmenn gætu átt von á góðu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mynd úr íslenskum söluturni árið 1998 kveikir fjörugar umræður um verðlag í dag

Mynd úr íslenskum söluturni árið 1998 kveikir fjörugar umræður um verðlag í dag
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill fullur kvíða í verslunum

Egill fullur kvíða í verslunum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir bræður finna varla fyrir sársauka – Beit af tungunni án þess að finna fyrir því

Íslenskir bræður finna varla fyrir sársauka – Beit af tungunni án þess að finna fyrir því