fbpx
Þriðjudagur 09.júní 2026
Fréttir

Iðnver og Laxey semja um byltingarkennda lausn

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. maí 2026 14:56

Pétur Blöndal, eigandi Iðnvers, og Kristmann Kristmannsson hjá Laxey undirrita samninginn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Iðnver ehf. og landeldisfyrirtækið Laxey hafa undirritað samning þess efnis að Laxey kaupir ECA-rafal af Iðnver. Um er að ræða byltingarkennda lausn fyrir sótthreinsun og þrif hjá landeldisfyrirtækinu í Vestmannaeyjum. Samningurinn er mikilvægur áfangi í samstarfi fyrirtækjanna sem hafa það að markmiði að auka nýsköpun og bæta umhverfisvernd í íslenskum sjávarútvegs- og matvælaiðnaði.

ECA-vatn (Electrolyzed Water) er umhverfisvæn tækni þar sem sjór og rafmagn eru nýtt til að framleiða öfluga, náttúrulega hreinsilausn með rafgreiningu. Tæknin býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika og hentar sérstaklega vel þar sem gerðar eru miklar kröfur um hreinlæti, öryggi og gæða.

Notkun á ECA-vatni er mjög áhrifarík aðferð til að eyða bakteríum, veirum og öðrum örverum, án þess að nota til þess skaðleg eða hættuleg efni. Þessi lausn hentar því einkar vel í sjávarútvegi, matvælaiðnaði, heilbrigðisþjónustu og ýmsum iðnaðarferlum, en einnig í sundlaugum og annars staðar þar sem mikilvægt er að tryggja hreint og öruggt umhverfi.

ECA- tæknin styður auk þess við sjálfbærni og umhverfisvernd með því að takmarka þörf fyrir hefðbundin skaðleg hreinsiefni og minni notkun þeirra dregur úr mengun umhverfisins. Jafnframt getur þessi nýja tækni stuðlað að bættum vatnsgæðum við ýmsa framleiðsluferla þar sem hreinleiki skiptir sköpum.

Stuðlar að enn frekari nýsköpun í íslenskum matvælaiðnaði

Landeldisfyrirtækið Laxey er mjög áhugasamt um sjálfbærni og hefur skuldbundið sig til að nota lausnir sem stuðla að verndun umhverfisins. Með því að fjárfesta í ECA-rafalnum frá Iðnveri, staðfestir Laxey að þau eru á réttri leið í átt að sjálfbærri þróun og eru opin fyrir nýrri tækni sem getur haft jákvæð áhrif á umhverfið.

Samstarf Iðnvers, Laxeyjar felur í sér að deila þekkingu og reynslu á þessu nýstárlega sviði, sem mun stuðla að enn frekari nýsköpun í íslenskum matvælaiðnaði. Með því að sameina krafta sína vonast fyrirtækin til að stuðla að aukinni notkun umhverfisvænna lausna og skapa þannig verðmæti fyrir fyrirtækin og samfélagið með betri grænni framtíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Einstaklingar sem fá þunga dóma fái ekki að skipta um nafn

Einstaklingar sem fá þunga dóma fái ekki að skipta um nafn
Fréttir
Í gær

Björgvunarsveitir sóttu ferðalanga á Mælifellssand

Björgvunarsveitir sóttu ferðalanga á Mælifellssand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hent út af framboðslistum eftir að hafa lofað voðaverk Hamas

Hent út af framboðslistum eftir að hafa lofað voðaverk Hamas
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu